
Þjónustuaðili
Háskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Náms- og starfsráðgjafi
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.05.2026
Umsóknarfrestur
01.06.2026
Náms- og starfsráðgjafi
Laust er til umsóknar fullt starf náms- og starfsráðgjafa við Nemendaráðgjöf Háskólans á Akureyri.
Háskólinn á Akureyri leggur metnað sinn í að vera nútímaháskóli með nútímaaðferðir í kennslu og ráðgjöf. Í HA er allt nám í sveigjanlegu námsumhverfi og stoðþjónusta miðuð að stúdentum óháð búsetu. Nemendaráðgjöf heyrir undir náms- og kennsluþjónustu Háskólans á Akureyri. Næsti yfirmaður er forstöðumaður Nemendaráðgjafar. Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri.
Starfið er tímabundið til eins árs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun ágúst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Náms- og starfsráðgjöf fyrir háskólastúdenta og umsækjendur
Stuðningur við nemendur, einstaklings- og hópráðgjöf
Umsjón og fræðsla á námskeiðum, fyrirlestrum, vinnustofum og kynningum á vegum nemendaráðgjafar
Umsjón og þjónusta vegna úrræða í námi
Samstarf við starfseiningar innan HA, aðrar menntastofnanir og fagaðila
Hæfniskröfur
MA próf á sviði náms- og starfsráðgjafar og leyfisbréf sem náms- og starfsráðgjafi
Reynsla af náms- og starfsráðgjöf, reynsla af háskólaumhverfi kostur
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Hæfni í að koma fram og halda kynningar og námskeið
Frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi
Þekking og áhugi á nýjungum í náms- og starfsráðgjöf
Reynsla af gerð námskeiða og námskeiðshald í náms- og starfsráðgjöf er kostur
Réttindi til að leggja fyrir áhugasviðskönnunina Bendil er kostur
Góð íslensku- og enskukunnátta
Góð almenn tölvukunnátta
Umsókn skal fylgja:
Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil
Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum
Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda
Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf. Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.06.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Náms- og starfsráðgjafi
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.05.2026
Umsóknarfrestur
01.06.2026