
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi í erfðafræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.05.2026
Umsóknarfrestur
16.06.2026
Doktorsnemi í erfðafræði
Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema í erfðafræði sem styrkt er af Rannís. Doktorsverkefnið verður unnið við Lífvísindasetur innan Læknadeildar Háskóla Íslands.
Verkefnið beinist að því að rannsaka svörun mannafruma við vægri kælingu (e. mild hypothermia response), nýlega skilgreint frumusvar sem talið er gegna lykilhlutverki í þeim jákvæðu áhrifum sem klínísk kæling hefur í barnalækningum og gjörgæslulækningum.
Hans Tómas Björnsson, prófessors við Læknadeild Háskóla Íslands í færsluvísindum (e. translational medicine) og barnalækningum, leiðir verkefnið og vaxandi alþjóðlegan rannsóknarhóp á Íslandi og í Bandaríkjunum (Johns Hopkins University). Hópurinn hefur nýlega birt rannsóknir í virtum alþjóðlegum tímaritum á borð við American Journal of Human Genetics, Science Translational Medicine, PNAS og Genome Research. Doktorsneminn mun starfa undir leiðsögn Hans Tómasar og verða hluti af rannsóknarteymi hans sem auk doktorsnemans er skipað nýdoktor og rannsóknatækni. Starfsaðstaða er á Sturlugötu 8.
Helstu verkefni og ábyrgð
Beita nýjustu aðferðum á borð við kerfisbundna CRISPR-Cas9 stökkbreytiskimun.
Kortlagning próteinbindinga með CUT&RUN og háafkastapróteinmælingum.
Gagnagreining.
Alþjóðlegt rannsóknasamstarf.
Hæfniskröfur
Meistarapróf í mannerfðafræði, heilbrigðisverkfræði, líffræði eða skyldum greinum. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.
Reynsla af vísindastörfum á rannsóknarstofu við erfðafræði, sameinda- eða frumulíffræði eða lífefnafræði.
Góð tölvufærni og reynsla af gagnagreiningu eða forritun er æskileg.
Góð enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.
Hæfni til að vinna sjálfstætt og í samstarfi við aðra.
Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Læknadeilddeild á Heilbrigðisvísindasviði og að umsóknin sé samþykkt af deild, sbr. Doktorsnám Heilbrigðisvísindastofnun
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Miðað er við að starf hefjist 1. júlí 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Greinargerð, þar sem umsækjandi lýsir hvernig hann uppfyllir skilyrði starfsins, hvers vegna hann hefur áhuga á að vinna verkefnið og hugmyndum sínum um framlag til verkefnisins (hámark 2 blaðsíður).
Ferilskrá.
Staðfest afrit af prófskírteinum (grunn- og meistaranám) og einkunnadreifing.
Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer.
Yfirlit yfir birtingar.
Umsækjendum er einnig boðið að senda PDF útgáfu af meistararitgerð sinni (á hvaða tungumáli sem er), sem og aðrar birtingar sem við eiga (hámark 5 skjöl).
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.06.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi í erfðafræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.05.2026
Umsóknarfrestur
16.06.2026