Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingar - Spennandi tækifæri á lungnadeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

40-100%

Starf skráð

18.05.2026

Umsóknarfrestur

28.05.2026

Hjúkrunarfræðingar - Spennandi tækifæri á lungnadeild

Ertu góður liðsfélagi og langar þig að starfa í spennandi starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla er á samvinnu, virðingu og jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi?

Okkur vantar hjúkrunarfræðinga í okkar góða lið á lungnadeild í Fossvogi og sækjumst eftir bæði reynslumiklum sem og nýútskrifuðum. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulagsatriði.

Lungnadeild er bráðalegudeild með hágæslurýmum og eina sérhæfða lungnadeildin á landinu. Þjálfun og fræðsla er í fyrirrúmi á deildinni og mörg námstækifæri. Á deildinni starfa um 70 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Starfsandi á deildinni er mjög góður og tekið vel á móti nýju samstarfsfólki. Við leggjum okkur fram við að þjónustan við skjólstæðinga okkar sé til fyrirmyndar, öryggi þeirra sé tryggt og að þeim sé sýnd hlýja og umhyggja.

Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun, ráðgjöf og stuðning til einstaklinga og aðstandenda þeirra sem leita til lungnadeildar til greiningar, rannsókna og/ eða meðferðar vegna einkenna frá öndunarfærum

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður

  • Hæfni og geta til að vinna í teymi

  • Íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 40-100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Árný Guðmundsdóttir

Tölvupóstur: gudrgudm@landspitali.is

Sími: 824-6019

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingar - Spennandi tækifæri á lungnadeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

40-100%

Starf skráð

18.05.2026

Umsóknarfrestur

28.05.2026