
Þjónustuaðili
Samgöngustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Lögfræðingur á umferðarsviði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.05.2026
Umsóknarfrestur
26.05.2026
Lögfræðingur á umferðarsviði
Samgöngustofa leitar að öflugum einstaklingi í stöðu lögfræðings á sviði umferðar hjá stofnuninni. Hlutverk umferðarsviðs er að efla umferðaröryggi með því að stuðla að öruggri notkun ökutækja. Helstu verkefni sviðsins eru stjórnsýsla, skráningar, eftirlit og leyfisveiting á sviði umferðarmála. Starfsemi sviðsins er í stöðugri þróun í samræmi við þarfir samfélagsins á hverjum tíma með umhverfissjónarmið og tækninýjungar að leiðarljósi. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á umferðaröryggi, stöðugum umbótum og er góður liðsmaður.
Í boði er spennandi starf hjá metnaðarfullri stofnun með öflugum mannauði, skýran samfélagslegan tilgang og framtíðarsýn. Lögð er áhersla á uppbyggingu faglegs starfsumhverfis, góða starfsaðstöðu og sveigjanleika í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnur þvert á deildir sviðsins og styður við faglega stjórnsýslu með ráðgjöf, aðstoðar við mótun verklags og innleiðingar nýrra krafna og styður almennt við framkvæmd verkefna.
Ráðgjöf og umsagnir um lög og reglugerðir og svör við fyrirspurnum frá stjórnvöldum og almenningi.
Mat á áhrifum og vinna við innleiðingu ESB-gerða.
Meðferð stjórnvaldsákvarðana, upplýsingabeiðna og persónuverndarmála.
Fræðsla um stjórnsýslu og lagaumhverfi til starfsfólks.
Þátttaka í alþjóðastarfi er varða starfsemi umferðarsviðs.
Hæfniskröfur
Grunn- og meistaranám í lögfræði.
Haldgóð reynsla eða þekking á sviði opinberrar stjórnsýslu.
Reynsla eða þekking á Evrópurétti, Þjóðarétti og EES-samningnum.
Reynsla og þekking á regluverki samgöngumála er kostur.
Skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
Góð hæfni í samskiptum, jákvætt og lausnamiðað viðhorf.
Góð færni í íslensku og ensku í rituðu og mæltu máli.
Góð almenn tölvukunnátta.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Öllum umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf. Í ráðningarferlinu verður óskað eftir að umsækjendur skili sakavottorði. Hafi umsækjandi verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi getur það orðið til þess að viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna starfi hjá stofnuninni. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í a.m.k. sex mánuði ef staða losnar á ný. Samgöngustofa áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Samgöngustofa hvetur fólk óháð kyni, þjóðernisuppruna og fötlun til að sækja um.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigurjóna Hr Sigurðardóttir
Framkvæmdastjóri umferðarsviðs
Tölvupóstur: sigurjona.h.sigurdardottir@samgongustofa.is
Sími: 4806000

Þjónustuaðili
Samgöngustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Lögfræðingur á umferðarsviði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.05.2026
Umsóknarfrestur
26.05.2026