Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliðar á nýja bráðamatsdeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

15.05.2026

Umsóknarfrestur

26.05.2026

Sjúkraliðar á nýja bráðamatsdeild

Viltu taka þátt í að byggja upp nýja þjónustu frá grunni og hafa áhrif á þróun hennar?

Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum sjúkraliðum til starfa á nýrri bráðamatsdeild. Þetta er einstakt tækifæri til að taka þátt í mótun deildar þar sem gæði, fagmennska og teymisvinna er í forgrunni.

Bráðamatsdeildin er ný og spennandi viðbót við bráðaþjónustu Landspítala, skipulögð að breskri fyrirmynd. Um er að ræða 20 rúma sólarhringsdeild þar sem þverfaglegt teymi sinnir sjúklingum með bráð veikindi á sviði lyflækninga.

Áhersla er lögð á

  • Skjótt og markvisst mat sjúklinga

  • Samþætta teymisvinnu

  • Skýra og árangursríka verkferla

Hér gefst tækifæri til að

  • Hafa áhrif á þróun verklags og þjónustu frá fyrsta degi

  • Vinna í kraftmiklu og lærdómsríku umhverfi

  • Efla þína faglegu færni

Starfið er fjölbreytt og krefjandi og gefur mikla möguleika til starfsþróunar.

Starfshlutfall er samkomulag, unnið er í vaktavinnu.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Einstaklingsmiðuð hjúkrun í samvinnu við aðra fagaðila

  • Þátttaka í teymisvinnu í greiningarferli og meðferð

  • Þróun ferla og verkefna á nýrri deild

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu innan deildar og í samvinnu við aðrar deildir

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi

  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi

  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

  • Áhugi á að starfa í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi

  • Góð íslenskukunnátta er æskileg

  • Reynsla af bráðaþjónustu er æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun

Tungumálahæfni: Íslenska 3/5 - 5/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 26.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hrönn Guðbjartsdóttir

Tölvupóstur: hronngudb@landspitali.is

Sími: 762-1759

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliðar á nýja bráðamatsdeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

15.05.2026

Umsóknarfrestur

26.05.2026