Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Náttúru­vernd­ar­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Þjónustufulltrúi Skaftafelli - sumarstarf

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

14.05.2026

Umsóknarfrestur

26.05.2026

Þjónustufulltrúi Skaftafelli - sumarstarf

Þjónustufulltrúi - sumarstarf

Náttúruverndarstofnun leitar að jákvæðum, hjálpsömum og þjónustulunduðum einstakling með brennandi áhuga á náttúru og umhverfismálum til sumarstarfa í gestastofu og á tjaldsvæði í Skaftafelli. Starf þjónustufulltrúa er fjölbreytt, þar sem áhersla er lögð á að veita framúrskarandi þjónustu, miðla upplýsingum, afgreiðslu, umhirðu, ræstingar og að stuðla að jákvæðri upplifun gesta.

Einstaklingar sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu mikilvæga starfi eru hvattir til að sækja um og leggja sitt af mörkum til að bæta upplifun gesta og styðja við verndun náttúru Íslands.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka gesta, upplýsingagjöf og þjónusta í gestastofum.

  • Áfylling og framsetning vara í verslun og daglegt uppgjör tekna.

  • Símsvörun og svörun tölvupósta.

  • Ræsting, umhirða og viðhald á gönguleiðum, tjaldsvæðum, gestastofum og áningastöðum þar sem við á.

  • Umsjón með afgreiðslu, umhirðu og daglegri starfsemi.

Hæfniskröfur

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og sterk þjónustulund.

  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lausnamiðuð hugsun við fjölbreyttar aðstæður.

  • Stundvísi, samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð.

  • Áhugi á náttúruvernd og umhverfismálum.

  • Geta til að tileinka sér þekkingu á starfssvæðinu.

  • Gott vald á íslensku og ensku, frekari tungumálakunnátta er kostur.

  • Gild ökuréttindi.

  • Gild réttindi í fyrstu hjálp eru kostur en boðið verður upp á námskeið í fyrstu hjálp í vor.

  • Geta til að vinna undir álagi og í fjölbreyttu vinnuumhverfi.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Umsækjandi þarf að geta hafið störf strax.Umsækjendur eru hvattir til að hengja ferilskrá við rafrænu umsóknina.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 26.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Linda Björk Hallgrímsdóttir

Tölvupóstur: linda.b.hallgrimsdottir@nattura.is

Margrét Jóna Ísólfsdóttir

Tölvupóstur: margret.jona.isolfsdottir@nattura.is

Þjónustuaðili

Náttúru­vernd­ar­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Þjónustufulltrúi Skaftafelli - sumarstarf

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

14.05.2026

Umsóknarfrestur

26.05.2026