Þjónustuaðili
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
Upplýsingar um starf
Starf
Fjármálastjóri við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.05.2026
Umsóknarfrestur
29.05.2026
Fjármálastjóri við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra óskar eftir að ráða fjármálastjóra til starfa frá og með 1. september 2026. Leitað er að einstaklingi sem vill takast á við krefjandi starf í fjölbreyttum og metnaðarfullum skóla. Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra er framhaldsskóli sem byggir á áfangakerfi, við skólann starfa rúmlega 70 starfsmenn og nemendur eru að jafnaði 750-850.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fjármálastjóri annast og ber ábyrgð á fjárreiðum, bókhaldi, launabókhaldi, greiðslu reikninga og innheimtu skólans og þeirra deilda sem eru reknar á ábyrgð hans
Fjármálastjóri ber ábyrgð á ætlanagerð og fjárhagslegri skýrslugerð, afstemmingum og uppgjöri
Fjármálastjóri ber ábyrgð á vörslu gagna sem tengjast bókhaldi FNV
Fjármálastjóri starfar náið með stjórnendum skólans
Hæfniskröfur
Háskólapróf í viðskiptafræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af bókhaldsstörfum nauðsynleg
Góð þekking á reikningshaldi og áætlanagerð
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti, ásamt góðri tölvukunnáttu og reynslu í notkun bókhaldsforrita
Skipulagshæfni, frumkvæði, árvekni, sjálfstæð og öguð vinnubrögð, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
Hreint sakavottorð, skv. 4. mgr. 8. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjölur hafa gert.
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra er metnaðarfullur og framsækinn skóli sem býður upp á afar fjölbreytt nám, bóknám, verknám og fjarnám, nám á hestabraut, kvikmyndabraut og starfsbraut sem og íþróttaakademíu í hinum ýmsu íþóttagreinum. Við skólann er heimavist og sömuleiðis er boðið upp á helgarnám í iðngreinum. Skólinn starfar undir kjörorðunum vinnusemi, virðing og vellíðan. Í skólanum starfar öflugur og samheldinn hópur starfsfólks sem hefur fagmennsku að leiðarljósi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
Upplýsingar um starf
Starf
Fjármálastjóri við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.05.2026
Umsóknarfrestur
29.05.2026