Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor við Iðjuþjálfunarfræðideild HA

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.05.2026

Umsóknarfrestur

01.06.2026

Lektor við Iðjuþjálfunarfræðideild HA

Við Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið Háskólans á Akureyri er laus til umsóknar 100% staða lektors.

Helstu verkefni og ábyrgð

Leitað er að iðjuþjálfa með doktorspróf. Helstu verkefni eru kennsla í iðjuþjálfunarfræði, rannsóknir og stjórnun á fræðasviðinu. Æskilegt er að umsækjandi hafi sérþekkingu á sviði samfélagslegrar þátttöku fatlaðs fólks, bæði varðandi kennslu og rannsóknir. Næsti yfirmaður er forseti Iðjuþjálfunarfræðideildar. Starfsstöð er Háskólinn á Akureyri nema sérstaklega sé samið um annað.

Staðan er veitt frá og með 1. október 2026 eða samkvæmt samkomulagi. Ráðningartími er tímabundinn til fimm ára en viðkomandi getur óskað eftir ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum samkvæmt reglum nr. 726/2023 um ótímabundna ráðningu akademísks starfsfólks við Háskólann á Akureyri. Framgangur í stöðu dósents eða prófessors kemur til greina við ráðningu hafi umsækjandi hæfi til þess að mati dómnefndar.

Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á nám í iðjuþjálfunarfræði. Til að fá starfsréttindi sem iðjuþjálfi er nauðsynlegt að ljúka BS-prófi í iðjuþjálfunarfræði og námi í iðjuþjálfun á meistarastigi. Framhaldsnámið er að miklu leyti verklegt og fer fram að hluta til í fjölbreytilegu starfsumhverfi iðjuþjálfa. Allt bóklegt nám í grunn- og meistaranámi í iðjuþjálfun er kennt í sveigjanlegu námi. Í Iðjuþjálfunarfræðideild eru stundaðar rannsóknir á ýmsum sviðum sem tengjast iðju, heilsu og þátttöku fólks á ólíkum aldri og með mismunandi félagslega stöðu í samfélaginu.

Hæfniskröfur

  • Umsækjandi skal hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar.

  • Umsækjandi hafi sýnt góðan árangur í kennslu og rannsóknum.

  • Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæðis, sjálfstæðum vinnubrögðum, skipulagshæfni ásamt góðri hæfni til að miðla þekkingu.

  • Umsækjandi hafi sýnt fram á hæfni við rannsóknir og reynslu í öflun rannsóknarstyrkja.

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu.

  • Staðfest afrit af öllum viðeigandi prófskírteinum á íslensku eða ensku.

  • Umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf umsækjanda eftir því sem við á.

  • Tilnefna skal tvo meðmælendur. Æskilegt er að annar þeirra sé næsti yfirmaður umsækjanda í núverandi eða fyrra starfi hans.

  • Umsækjendur skulu senda með umsókn þær fræðilegu ritsmíðar sem þeir telja sín bestu verk, allt að þrjú rit. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu verki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.

  • Greinargerð um fyrirhugaðar rannsóknaráherslur ef til ráðningar kemur.

Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir kennslu- og rannsóknarþarfir Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um háskóla nr. 63/2006, laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, reglur nr. 694/2022 fyrir Háskólann á Akureyri og reglur nr. 724/2023 um nýráðningar akademísks starfsfólks við Háskólann á Akureyri. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin.

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynja og hvetur alla hæfa umsækjendur, óháð kyni, til að sækja um laus störf.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 01.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sólrún Óladóttir

forseti Iðjuþjálfunarfræðideildar

Tölvupóstur: solrun@unak.is

Sími: 4608476

Brynjar Karlsson

forseti Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs

Tölvupóstur: brynjark@unak.is

Sími: 4608482

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor við Iðjuþjálfunarfræðideild HA

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.05.2026

Umsóknarfrestur

01.06.2026