Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur í geðhvarfateymi - dagvinna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

18.05.2026

Umsóknarfrestur

05.06.2026

Hjúkrunarfræðingur í geðhvarfateymi - dagvinna

Við óskum eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan hjúkrunarfræðing til starfa með okkur í geðhvarfateymi Landspítala á Kleppi. Teymið sinnir einstaklingum með geðhvörf og er eitt af sex teymum á göngudeild lyndisraskana.

Starfið felst meðal annars í mati og meðferð á geðrænum og líkamlegum einkennum, málastjórn, teymisvinnu og þjónustu við aðstandendur. Í teyminu er lögð áhersla á góðan starfsanda, þverfaglegt samstarf og stöðugar umbætur. Í boði eru fjölbreytt tækifæri til vaxtar með markvissri þjálfun og starfsþróun þar sem boðið er upp á faglega leiðsögn. Hjúkrunarfræðingur á göngudeild lyndisraskana er virkur þátttakandi í mótun framtíðarsýnar og eflingu hjúkrunar innan geðþjónustu Landspítala.

Starfshlutfall er 80-100% og unnið er í dagvinnu. Vinnuvika í fullu starfi er 36 klukkustundir. Starfið er laust frá 1. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þjónusta við notendur og aðstandendur þeirra

  • Málastjórn, geðfræðsla og heildrænn stuðningur við andlega og líkamlega heilsu notenda

  • Þátttaka í teymisvinnu og samvinna við önnur teymi/ stofnanir

  • Þátttaka í umbóta- og gæðaverkefnum

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • 2-5 ára reynsla af starfi í geðþjónustu er kostur

  • Framhaldsmenntun í geðhjúkrun er kostur

  • Reynsla af málastjórn er kostur

  • Einlægur áhugi á geðhjúkrun

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og áhugi að þróa hlutverk hjúkrunar

  • Sveigjanleiki og hæfni til aðlaga þjónustu að fjölbreyttum þörfum notenda

  • Vilji til að starfa í þverfaglegu teymi

  • Stundvísi, áreiðanleiki og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni íslenska 4/5 enska 3/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sandra Friðriksdóttir

Tölvupóstur: sandraf@landspitali.is

Ragnheiður H. Eiríksd. Bjarman

Tölvupóstur: ragnheei@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur í geðhvarfateymi - dagvinna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

18.05.2026

Umsóknarfrestur

05.06.2026