Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Málastjóri í Laufeyjarteymi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.05.2026

Umsóknarfrestur

29.05.2026

Málastjóri í Laufeyjarteymi

Málastjóri óskast til starfa í Laufeyjarteymi Landspítala. Starfið býður upp á mörg spennandi tækifæri til starfsþróunar. Staðan er laus frá 1. júlí 2026 og er starfshlutfall 80-100%. Eingöngu er um dagvinnu að ræða.

Laufeyjarteymi þjónustar einstaklinga sem lifa með langvarandi samslætti geðsjúkdóma og fíknar, á því stigi að hvort um sig er alvarlegt og óstöðugt í eðli sínu og fyrri og vægari meðferðarnálganir hafa ekki skilað árangri eða bættum lífsgæðum. Teymið þjónustar einstaklinga í þeirra nærumhverfi, á vettvangi.

Hlutverk málastjóra er fjölbreytt og felst meðal annars í mati á geðrænum einkennum og á einstaklingsbundnum þörfum, sinna meðferð og eftirfylgd, þróa meðferðaráætlanir og vöktun á árangri þjónustunnar. Málastjóri er talsmaður skjólstæðinga gagnvart kerfum og þjónustu í nánu notendasamráði sem byggir á góðu meðferðarsambandi. Málastjóri er einnig í samskiptum við aðstandendur og heldur utan um þá meðferð og endurhæfingu sem einstaklingurinn þarf á að halda.

Laufeyjarteymi er hluti af ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu og mun frá hausti vera staðsett á Kleppi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Málastjórn, þ.m.t. greining á þjónustuþörf, færni og gerð meðferðaráætlana, tryggja eftirfylgni, yfirsýn yfir samskipti, fræðsla, leiðbeiningar og heildrænn stuðningur

  • Málsvarastarf fyrir skjólstæðinga

  • Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi

  • Stuðningur við aðstandendur

  • Notendasamráð og þróun þjónustu

  • Virk þátttaka í framþróun, uppbyggingu þjónustunnar og umbótastarfi deildar

  • Önnur fjölbreytt verkefni

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi

  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi sem og einlægur áhugi á að þjónusta og sinna einstaklingum með geðsjúkdóma og vímuefnavanda

  • Góð þekking á geðsjúkdómum, HAM, viðtalstækni og áhugahvetjandi samtölum

  • Góð þekking á hugmyndafræði skaðaminnkunar

  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur

  • Reynsla af starfi innan geðþjónustu er kostur

  • Mjög góð samskiptahæfni

  • Jákvætt hugarfar, metnaður og færni til að starfa í þverfaglegu teymi

  • Stundvísi og áreiðanleiki

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt, skipuleggja og forgangsraða verkefnum

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í mæltu og rituðu máli

  • Gilt ökuskírteini

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi eins og við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, sálfræðingur, félagsráðgjafi, iðjuþjálfi, þroskaþjálfi, málastjóri

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5

Staðsetning: Kleppur, 104 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 29.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ína Rós Jóhannesdóttir

Tölvupóstur: inaros@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Málastjóri í Laufeyjarteymi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.05.2026

Umsóknarfrestur

29.05.2026