Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Félagsráðgjafi við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
12.05.2026
Umsóknarfrestur
29.05.2026
Félagsráðgjafi við Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) auglýsir laust til umsóknar starf félagsráðgjafa á geðsviði. Um er að ræða 80-100% stöðu sem er laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Ef þú hefur brennandi áhuga á heilbrigðismálum, teymisvinnu og vilt vera hluti af góðu starfsumhverfis og framþróun á Sjúkrahúsinu á Akureyri, þá er þetta rétta tækifærið fyrir þig!
Félagsráðgjafi starfar á legudeild og dag- og göngudeild þar sem fer fram fjölbreytt og mikilvægt starf til meðferðar og stuðnings við einstaklinga með geðraskanir. Einn af lykilþáttum starfseminnar er teymisvinna þar sem samstarf og faglegur stuðningur er í fyrirrúmi. Fagsérhæfð þekking félagsráðgjafa er ómissandi hluti af því teymi og er mikilvægur hlekkur í þeirri vinnu.
Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi starf í umhverfi sem leggur áherslu á vöxt og þroska, þar sem tækifæri gefst til að hafa áhrif á bæði þjónustuna sem veitt er og starfsaðferðir. Á Sjúkrahúsinu á Akureyri er jákvætt og stuðningsríkt vinnuumhverfi, með reynslumiklum og hvetjandi samstarfsfélögum. Á SAk er starfandi þéttur hópur félagsráðgjafa sem starfa á bráðalegudeildum, endurhæfingardeild og geðsviði sem vinnur saman að uppbyggingu þjónustunnar. Hér færðu tækifæri til að taka þátt í áframhaldandi þróun og mótun á umbótastarfi í samvinnu við aðra fagaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
**Mat og ráðgjöf:**metur þarfir skjólstæðinga á legu- og göngudeild fyrir þjónustu félagsráðgjafa og veitir þeim stuðning með faglegri ráðgjöf. Veitir upplýsingar um úrræði, félaglega þjónustu og aðstoð við að leysa vanda tengt félagslegum þáttum og hefur eftirlit með réttindum skjólstæðinga.
**Teymisvinna:**Tekur þátt í teymisvinnu með öðrum fagaðilum með áherslu á fagsérhæfingu félagsráðgjafa. Nýtir fagþekkingu til að tryggja heildræna meðferð og stuðning við skjólstæðinga.
Áætlanagerð og stýring fagsérhæfðra félagsráðgjafa verkefna: Tekur þátt í að þróa einstaklingsmiðaðar meðferðaráætlanir fyrir skjólstæðinga og hjálpar þeim að finna leiðir til að bæta lífsgæði sín t.d. með aðstoð við að bæta félagslega færni, auka sjálfstæði og forðast endurkomu á sjúkrahús.
Viðtöl og stuðningur við fjölskyldur: Veitir stuðning og ráðgjöf einnig til fjölskyldna og annarra aðstandenda skjólstæðinga, sem getur falist í aðstoð við að bæta samskipti, veita upplýsingar um meðferð og hjálpa til við að takast á við krefjandi aðstæður.
Fræðsla og félagsleg úrræði: Veitir fræðslu um geðheilbrigði og veitir upplýsingar um félagsleg úrræði, svo sem aðstoð við atvinnuleit, húsnæðismál og önnur félagsleg úrræði sem gætu hjálpa skjólstæðingum við bætt lífskjör.
Þátttaka í þróun á umbótum: Tekur þátt í þróun og umbótum á þjónustu og ferlum, með það að markmið að bæta þjónustu og tryggja gæði í starfseminni.
Skýrslugerð og skráning upplýsinga: Heldur utan um skýrslur og skráir upplýsingar í þar til gerð sjúkraskrárkerfi um meðferð skjólstæðinga, tryggir að allar upplýsingar séu skráðar með viðeigandi lögum og reglum og árangursmetur þjónustuna og þróun þjónustunnar.
Starfsþjálfun: hefur ábyrgð á starfsþjálfun og handleiðslu félagsráðgjafarnema og nýrra félagsráðgjafa ásamt miðlun fræðslu.
Samvinna við aðrar stéttir: Fagleg tengsl og samráð við samstarfsaðila innan og utan stofnunar.
Hæfniskröfur
Viðurkennt félagsráðgjafanám
Formleg löggilding og íslenskt starfsleyfi
Góð Íslenskukunnátta er skilyrði
Góð samskiptafærni og sveigjanleiki
Jákvæð reynsla og áhugi á teymisvinnu
Hæfni til að vinna sjálfstætt, góð skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Metnaður og lausnarmiðuð hugsun
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félagsráðgjafafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Félagsráðgjafi við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
12.05.2026
Umsóknarfrestur
29.05.2026