Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í klínískri lyfjafræði - Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.05.2026
Umsóknarfrestur
12.06.2026
Sérfræðingur í klínískri lyfjafræði - Sjúkrahúsið á Akureyri
Laus er til umsóknar 100% staða sérfræðings í klínískri lyfjafræði í lyfjaþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri. Um nýtt og spennandi framtíðarstarf er að ræða í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi sem býður upp á mikla möguleika. Starfið felur í sér þróun og umbætur í lyfjaþjónustu, þátttöku í klínísku starfi, faglegri þróun klínískrar lyfjafræði og þverfaglegri samvinnu. Lyfjaþjónusta SAk sækist eftir framsæknum klínískum lyfjafræðingi með sterka þjónustulund og sveigjanleika sem er tilbúnn að takast á við verkefni í mótun. Um er að ræða dagvinnustarf.
Staðan veitist frá 01.09.2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Næsti yfirmaður er Jóna Valdís Ólafsdóttir, deildarstjóri lyfjaþjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Er faglega leiðandi í uppbyggingu og þróun klínískrar lyfjaþjónustu á SAk í samráði við stjórnendur
Veitir klíníska lyfjafræðiþjónustu á deildum, sinnir klínískum störfum á sínu fagsviði, veitir ráðgjöf og tekur þátt í teymisvinnu innan lyfjaþjónustu og utan
Tekur þátt í þjálfun sérnámslyfjafræðinga í klínískri lyfjafræði, nema og nýs starfsfólks
Tekur þátt í viðhaldi og uppfærslum á lyfjafyrirmælakerfi
Tekur þátt í og styður við innleiðingu á árangursvísum, gæðavísum og starfsemistölum
Tekur þátt í uppbyggingu gæðakerfis
Tekur þátt í frekari uppbyggingu og þróun lyfjaþjónustu
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Meistarapróf í klínískri lyfjafræði eða sambærileg sérmenntun
Íslenskt starfsleyfi sem lyfjafræðingur og sem sérfræðingur í klínískri lyfjafræði sbr. reglugerð 1090/2012
Reynsla á sviði klínískrar vinnu innan sjúkrahúss
Reynsla af handleiðslu nema og sérnámslyfjafræðinga
Geta og áhugi til að leiða umbótaverkefni sem stuðla að auknu lyfjaöryggi og betri árangri í lyfjameðferð sjúklinga
Þekking á gæðastjórnun og atvikaskráningu
Hæfni til að leiða uppbyggingu og þróun klínískrar lyfjafræði
Hæfni til að þróa, mæla og fylgjast með árangurs- og gæðavísum í klínískri lyfjaþjónustu
Nákvæm, skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni, öflugur liðsmaður og jákvætt viðmót
Góð hæfni í íslensku og ensku
Góð tölvukunnátta
Frumkvæði, þjónustulund og áhugi á að þroskast í starfi
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Lyfjafræðingafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í klínískri lyfjafræði - Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.05.2026
Umsóknarfrestur
12.06.2026