Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðarmaður við hjúkrun - Fáskrúðsfjörður- Hjúkrunarheimilið Uppsalir
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
12.05.2026
Umsóknarfrestur
26.05.2026
Aðstoðarmaður við hjúkrun - Fáskrúðsfjörður- Hjúkrunarheimilið Uppsalir
HSA óskar eftir að ráða aðstoðarmann við hjúkrun á hjúkrunarheimilið Uppsali á Fáskrúðsfirði. Starfshlutfall er 80% eða samkvæmt samkomulagi. Unnið er á vöktum og er staðan laus frá 1. júní næstkomandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðhlynning og tilfallandi störf. Þetta er gott tækifæri fyrir þá sem vilja starfa og öðlast fjölbreytta reynslu tengdri hjúkrun.
Hæfniskröfur
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Reynsla af sambærilegum störfum er kostur. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 26.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Helga Sturludóttir
Tölvupóstur: helga.sturludottir@hsa.is
Eygerður Ósk Tómasdóttir
Tölvupóstur: eygerdur.o.tomasdottir@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðarmaður við hjúkrun - Fáskrúðsfjörður- Hjúkrunarheimilið Uppsalir
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
12.05.2026
Umsóknarfrestur
26.05.2026