
Þjónustuaðili
Háskólinn á Hólum
Upplýsingar um starf
Starf
Rekstrarstjóri við Háskólann á Hólum
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.05.2026
Umsóknarfrestur
26.05.2026
Rekstrarstjóri við Háskólann á Hólum
Laust er til umsóknar fullt starf rekstrarstjóra við Háskólann á Hólum.
Rekstrarstjóri veitir sviði mannauðs, gæða og rekstrar og sviði rannsókna, nýsköpunar og kennslu forstöðu. Hann vinnur náið með rektor, öðrum stjórnendum og starfsfólki háskólans og er ætlað að leiða teymi og umbótastarf með gagnadrifinni nálgun. Rekstrarstjóri situr í framkvæmdaráði háskólans og heyrir starf hans undir rektor.
Fyrir Alþingi liggur frumvarp um breytingar á lögum um háskóla þar sem m.a. er fjallað um stofnun háskólasamstæðu Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands. Rekstrarstjóri mun koma að þeirri vinnu og gegna mikilvægu hlutverki varðandi framtíð og þróun háskólastarfs við Háskólann á Hólum. Stofnun háskólasamstæðu er umfangsmikið breytingaverkefni sem felur í sér ýmsar áskoranir tengdar verkefnum rekstrarstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð og eftirfylgni með daglegum rekstri, stjórnun og áætlanagerð á þeim sviðum sem undir hann heyra
Ábyrgð á áætlanagerð og fjármálum skólans
Ábyrgð á rekstri húsnæðis, innviðum og öryggis- og aðgengismálum
Skýrslu- og samningagerð
Greining og miðlun upplýsinga til stuðnings stefnumótandi ákvarðanatöku
Seta í framkvæmdaráði háskólans og ýmsum nefndum og ráðum
Samskipti og upplýsingamiðlun til nemenda, kennara, stjórnenda og starfsfólks skólans
Samstarf og samskipti við ýmsa ytri hagaðila og aðra háskóla
Hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi, meistarapróf er æskilegt
Reynsla af stjórnun
Reynsla af rekstri og fjárhagsáætlanagerð
Reynsla af gæða- og stefnumótunarstarfi er æskileg
Reynsla af uppbyggingu teyma og breytingastjórnun er kostur
Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
Leiðtoga- og samskiptahæfni, frumkvæði og umbótamiðuð hugsun
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og á riti
Góð tölvukunnátta, þar á meðal í Excel, reynsla af Power BI er æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfsstöð rekstrarstjóra er bæði á Hólum í Hjaltadal og á Sauðárkróki. Háskólinn aðstoðar við að finna húsnæði í Skagafirði sé þess þörf.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókninni:
Náms- og starfsferilskrá
Kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi
Staðfest afrit af prófskírteinum
Nöfn, netföng og símanúmer að minnsta kosti tveggja umsagnaraðila
Háskólinn á Hólum er sérhæfður háskóli í Skagafirði með sterka faglega sýn og áherslu á gæði í námi, kennslu og rannsóknum. Háskólinn á Hólum starfar í nánu samstarfi við atvinnulíf og samfélag í umhverfi þar sem þekking, nýsköpun og sjálfbærni fara saman. Við Háskólann á Hólum er öflugt rannsóknarstarf og er boðið upp á nám í fiskeldis- og fiskalíffræðideild, ferðamáladeild og hestafræðideild. Við háskólann starfa um 50 manns.
Nánar um Háskólann á Hólum - Háskólinn á Hólum
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.05.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskólinn á Hólum
Upplýsingar um starf
Starf
Rekstrarstjóri við Háskólann á Hólum
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.05.2026
Umsóknarfrestur
26.05.2026