
Þjónustuaðili
Fjölbrautaskóli Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Stuðningsfulltrúi á sérnámsbraut
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
60%
Starf skráð
11.05.2026
Umsóknarfrestur
28.05.2026
Stuðningsfulltrúi á sérnámsbraut
Fjölbrautaskóli Suðurlands auglýsir eftir stuðningsfulltrúa á sérnámsbraut. Um er að ræða 60 - 80 % starfshlutfall frá 14. ágúst 2026 - 14. maí 2027.
FSu er líflegur og skapandi vinnustaður með metnaðarfullu starfsfólki og góðum starfsanda. Um 150 starfa við skólann og nemendur eru yfir 1000. Skólinn státar af fjölbreyttu námsframboði en yfir 20 námsbrautir eru í boði; bóknám, verknám, listnám auk öflugra íþróttaakademía, hestabrautar og garðyrkjunáms á Reykjum. Unnið er markvisst eftir gildum skólans sem eru fjölbreytni, sköpun, upplýsing.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stuðningsfulltrúi aðstoðar nemendur sérnámsbrautar við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfinu.
Vinnur eftir áætlunum sviðsstjóra og sérkennara.
Ýtir undir færni og sjálfstæði nemenda.
Fylgir nemendum um skólann í frímínútum, matartímum og vettvangsferðum á vegum skólans.
Ýmis störf sem honum eru falin af sviðsstjóra og falla undir starfssvið hans.
Hæfniskröfur
Leitað er að skipulögðum einstaklingi með mikla þjónustulund, þolinmæði og jákvæða framkomu.
Reynsla af vinnu með fötluðum ungmennum er kostur.
Mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga á að vinna með nemendum á sérnámsbraut.
Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi hafa gert.
Umsókn skal fylgja ferilskrá með upplýsingum um nám og fyrri störf. Umsækjendur þurfa að skila inn hreinu sakavottorði skv. lögum nr. 92/2008. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út nema umsækjandi ákveði annað. Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.
Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans.
Starfshlutfall er 60%
Umsóknarfrestur er til og með 28.05.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Fjölbrautaskóli Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Stuðningsfulltrúi á sérnámsbraut
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
60%
Starf skráð
11.05.2026
Umsóknarfrestur
28.05.2026