
Þjónustuaðili
Fjársýslan
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur / teymisstjóri - launakeyrslur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.05.2026
Umsóknarfrestur
26.05.2026
Sérfræðingur / teymisstjóri - launakeyrslur
Viltu hafa raunveruleg áhrif á hvernig launavinnsla ríkisins þróast til framtíðar?
Fjársýslan leitar að drífandi og lausnamiðuðum sérfræðingi sem vill leiða framþróun í launakeyrslum ríkisins ¿ einstaklingi sem sameinar faglega dýpt, sterka greiningarhæfni og hæfni til að leiða teymi að skýrum markmiðum.
Framundan eru spennandi verkefni þar sem lögð er áhersla á að einfalda og bæta ferla, auka sjálfvirkni og tryggja áreiðanleika, gagnaöryggi og virðisaukandi þjónustu. Í starfinu færð þú tækifæri til að hafa mótandi áhrif á þróun launakerfa og vinnubragða, á sama tíma og þú tryggir skilvirk og ábyrg skil verkefna.
Þú munt leiða og styðja teymi sérfræðinga, stýra verkefnum og vinna náið með ríkisaðilum að umbótum og betri þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leiða og þróa launakeyrslur og tengd verkefni
Drífa áfram umbætur á ferlum, verklagi og stafrænum lausnum
Fagleg stýring teymis og verkefnastjórnun
Greining og úrvinnsla gagna úr launakerfum
Kortleggja tækifæri til aukinnar skilvirkni og umbóta
Samskipti og samstarf við ríkisaðila
Fræðsla, ráðgjöf og miðlun þekkingar
Hæfniskröfur
Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi
Ert töluglögg/ur með sterka greiningarhæfni og lausnamiðað hugarfar
Hefur reynslu af launakerfum og/eða bókhaldi
Þekkir kjarasamninga og túlkun þeirra
Hefur leiðtogahæfni, þjónustulund og góða samskiptahæfni
Vinnur skipulega, sýnir frumkvæði og leggur áherslu á nákvæmni
Hefur gott vald á íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku) þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda til að gegna starfinu. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni og geta umsóknir gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa. Um 100% starf er að ræða og við ráðningu í starfið er farið eftir jafnréttisstefnu Fjársýslunnar.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Sigrún Guðmundsdóttir
Tölvupóstur: kristin.gudmundsdottir@fjs.is

Þjónustuaðili
Fjársýslan
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur / teymisstjóri - launakeyrslur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.05.2026
Umsóknarfrestur
26.05.2026