
Þjónustuaðili
Flensborgarskóli
Upplýsingar um starf
Starf
Þjónustu- og skjalafulltrúi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
22.05.2026
Umsóknarfrestur
04.06.2026
Þjónustu- og skjalafulltrúi
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði auglýsir stöðu þjónustu- og skjalafulltrúa, frá og með 1. ágúst 2026.
Við leitum að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur góða skipulagshæfni og getur unnið sjálfstætt og af öryggi í síbreytilegu umhverfi.
Um 50% starf er að ræða.
Flensborgarskólinn er heilsueflandi framhaldsskóli í Hafnarfirði og leggur áherslu á framsækni og metnað í námi, farsæld nemenda og starfsþróun starfsfólks. Framtíðarsýn skólans má sjá í stefnu hans og er þar m.a. lögð áhersla á framsækni og metnað í skólastarfi auk vellíðunar og farsældar nemenda og starfsfólks. Á heimasíðunni www.flensborg.is er að finna ýmsar upplýsingar um skólann og starfsemi hans.
Helstu verkefni og ábyrgð
Innleiðing verkferla við skjalvörslu og umsjón með skjalakerfi skólans
Almenn þjónusta á bókasafni
Stuðningur og aðstoð á álagstímum á skrifstofu skólans
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttu starfi, er skipulagður, fær í samskiptum og fellur vel að aðstæðum og þörfum skólans.
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun í upplýsingafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
Þekking og reynsla af skjalastjórnun
Góð íslenskukunnátta í máli og riti
Faglegur metnaður, skipulagshæfni og sjálfstæði
Góð samskiptafærni og rík þjónustulund
Áhugi á þjónustu og umbótum í starfi
Góð tölvukunnátta, svo sem í Office umhverfi og öðrum kerfum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is)
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Náms- og starfsferilsskrá
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um umsagnaraðila sem hafa má samband við
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisstefnu Flensborgarskólans og eru öll kyn hvött til að sækja um starfið.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 04.06.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Flensborgarskóli
Upplýsingar um starf
Starf
Þjónustu- og skjalafulltrúi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
22.05.2026
Umsóknarfrestur
04.06.2026