Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Flens­borg­ar­skóli

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjórnun

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

22.05.2026

Umsóknarfrestur

04.06.2026

Verkefnastjórnun

Flensborgarskólinn í Hafnarfirði auglýsir stöðu verkefnisstjóra stefnumótunar og umbóta, frá og með 1. ágúst 2026.

Við leitum að öflugum og drífandi einstaklingi til að leiða og þróa lykilverkefni í stefnumótun og umbótavinnu með það að markmiði að styrkja starfsumhverfi, skýra stefnu skólansog hafa umsjón með ýmsum viðburðum og verkefnum á vegum skólans.

Um 50% starf er að ræða og er verkefnið tímabundið til 12 mánaða.

Flensborgarskólinn er heilsueflandi framhaldsskóli í Hafnarfirði og leggur áherslu á framsækni og metnað í námi, farsæld nemenda og starfsþróun starfsfólks. Framtíðarsýn skólans má sjá í stefnu hans og er þar m.a. lögð áhersla á framsækni og metnað í skólastarfi auk vellíðunar og farsældar nemenda og starfsfólks. Á heimasíðunni www.flensborg.is er að finna ýmsar upplýsingar um skólann og starfsemi hans.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning vinnu við endurmótun á heildarstefnu skólans

  • Tryggja framvindu umbóta í samvinnu við skólastjórnendur

  • Þróa tillögur að hinum ýmsu stefnum skólans

  • Verkefnastýring - skipulagning og utanumhald á ýmsum verkefnum á vegum skólans

  • Umsjón með upplýsingagjöf á helstu verkefnum og viðburðum skólans

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttu starfi, er skipulagður, fær í samskiptum og fellur vel að aðstæðum og þörfum skólans. Verkefnastjóri vinnur náið með skólastjórnendum, kennurum og starfsfólki að skipulagi og framkvæmd fjölbreyttra viðfangsefna.

Verkefnastjóri skal hafa:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í verkefnastjórnun eða sambærilegum greinum

  • Reynslu af stefnumótun og/eða verkefnastjórnun

  • Faglegan metnað, frumkvæði og jákvætt hugarfar

  • Afburða góða hæfni til samvinnu og samskipta

  • Góða ritfærni í íslensku og ensku og hæfni til að vinna með gögn og við skýrslugerð

  • Reynslu og hæfni í notkun upplýsingatækni, svo sem Office umhverfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is)

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

  • Náms- og starfsferilsskrá

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila sem hafa má samband við

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisstefnu Flensborgarskólans og eru öll kyn hvött til að sækja um starfið.

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 04.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Erla Sigríður Ragnarsdóttir

Skólameistari

Tölvupóstur: erla@flensborg.is

Sími: 565 0400

Júlía Jörgensen

Aðstoðarskólameistari

Tölvupóstur: julia@flensborg.is

Sími: 565 0400

Þjónustuaðili

Flens­borg­ar­skóli

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjórnun

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

22.05.2026

Umsóknarfrestur

04.06.2026