
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi í tæknilegri jarðskjálftafræði og jarðskjálftaverkfræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.05.2026
Umsóknarfrestur
22.06.2026
Doktorsnemi í tæknilegri jarðskjálftafræði og jarðskjálftaverkfræði
Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema í tæknilegri jarðskjálftafræði (e. engineering seismology) og jarðskjálftaverkfræði (e. earthquake engineering) við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands. Rannsóknarverkefnið hefur hlotið þriggja ára styrk frá Rannsóknasjóði Rannsóknarmiðstöðvar Íslands (Rannís).
Verkefnið ber heitið: Ný jarðskjálftavárkort fyrir Suðvesturland: Aðferðir til að meta og miðla óvissu í skjálftavá (EQSIGMA). Rannsóknarverkefnið er samstarfsverkefni Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands. Starfsaðstaða verður við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands og á Veðurstofu Íslands. Doktorsneminn verður hluti af öflugu og virku rannsóknarumhverfi hjá Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands og alþjóðlegum samstarfsaðilum, þar sem tengsl verða milli grunnrannsókna og beinnar hagnýtingar, m.a. í símati á skjálftavá og miðlun niðurstaðna til almennings og hagaðila. Meðal annars býðst doktorsnemanum möguleikar á að dvelja að hluta við rannsóknir hjá samstarfsaðilum s.s. Háskólanum í Granada, Spáni, með áherslu á vélrænt nám, og GFZ, þýsku jarðvísindamiðstöðvarinnar, með áherslu á líkanagerð jarðskjálftahreyfinga og greiningu á skjálftavárlíkindum.
Verkefnisstjórar eru Dr. Milad Kowsari, sérfræðingur við Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands, og Dr. Benedikt Halldórsson, fagstjóri jarðskjálftavár hjá Veðurstofu Íslands og rannsóknaprófessor við Háskóla Íslands.
Helstu verkefni og ábyrgð
Doktorsneminn mun stunda grunnrannsóknir á sviði tæknilegrar jarðskjálftafræði og jarðskjálftaverkfræði, með áherslu á:
Mat og framsetningu óvissu í líkindagreiningu jarðskjálftavár (PSHA)
Notkun háþróaðra eðlisfræðilegra reiknilíkana fyrir yfirborðshreyfingar af völdum jarðskjálfta og notkun vélarnáms við skjótt mat og framsetningu áhrifakorta
Hæfniskröfur
Meistarapróf á sviði jarðskjálftafræði, byggingarverkfræði, jarðeðlisfræði eða skyldum greinum. Meistaragráðu skal vera lokið þegar starf hefst.
Reynsla af sambærilegum verkefnum tengt skjálftavárgreiningu, líkanagerð jarðskjálftahreyfinga, vélarnámi, bayesískri tölfræði eða óvissumati er æskileg.
Góð greiningarhæfni og forritunargeta
Gott vald á ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
Góð samstarfs- og samskiptahæfni
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að starfa í teymi
Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands og að umsóknin sé samþykkt af deild.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Gert er ráð fyrir að starf hefjist í fyrsta lagi 1. september 2026, eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins (hámark 2 bls)
Afrit af prófskírteinum og námsyfirlit með einkunnum (BS og MS gráður, eða sambærilegt, eða staðfesting frá leiðbeinanda um áætlaðan lokadag meistaraprófs).
Umsækjandi má senda inn ritgerðir (BS og MS) og vísindagreinar á PDF formi.
Upplýsingar um tvo umsagnaraðila.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi í tæknilegri jarðskjálftafræði og jarðskjálftaverkfræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.05.2026
Umsóknarfrestur
22.06.2026