Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Flens­borg­ar­skóli

Upplýsingar um starf

Starf

Flensborgarskólinn í Hafnarfirði leitar að öflugum kennara á starfsbraut

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.05.2026

Umsóknarfrestur

26.05.2026

Flensborgarskólinn í Hafnarfirði leitar að öflugum kennara á starfsbraut

Flensborgarskólinn í Hafnarfirði auglýsir stöðu kennara með framhaldsnám í sérkennslufræðum fyrir skólaárið 2026-2027 lausa til umsóknar.

Við leitum að öflugum og drífandi einstaklingi sem er tilbúinn til að takast á við krefjandi verkefni við að stuðla að metnaðarfullu og framsæknu skólastarfi í samhentu teymi.

Um 100% starf er að ræða. Ráðið verður í starfið frá 1. ágúst 2026.

Flensborgarskólinn er heilsueflandi framhaldsskóli í Hafnarfirði og leggur áherslu á framsækni og metnað í námi, farsæld nemenda og starfsþróun kennara. Á heimasíðu skólans, www.flensborg.is, er að finna ýmsar upplýsingar um helstu stefnur skólans og áherslur í námi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að annast og bera ábyrgð á kennslu í fjölbreyttum greinum á starfsbraut

  • Undirbúningur kennslu, námsmat og faglegt samstarf

  • Gerð kennsluáætlana og námsmats í samstarfi við aðra kennara

  • Þróa kennsluhætti og námsmat út frá hugmyndafræði leiðsagnarnáms í samstarfi við aðra kennara brautarinnar

Hæfniskröfur

  • Menntun og hæfni til sérkennslu á framhaldsskólastigi sem fullnægir kröfum laga nr. 95/2019

  • Reynsla af einstaklingsmiðuðu námi og að kenna fjölbreyttum hópi er skilyrði

  • Fjölbreyttur grunnur í kennslu verklegra greina er kostur

  • Reynsla af kennslu eða vinnu með ungu fólki er kostur

  • Faglegur metnaður, skipulagshæfni og ögun í vinnubrögðum

  • Frumkvæði í starfi og jákvætt hugarfar

  • Áreiðanleiki og stundvísi

  • Góð samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum er skilyrði

  • Góð tölvufærni er skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Um er að ræða stöðu til eins árs með möguleika á framlengingu. Umsókn fylgi kynningarbréf, náms- og starfsferilsskrá ásamt afriti af prófskírteinum og leyfisbréfi kennara.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 26.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Erla Sigríður Ragnarsdóttir

Skólameistari

Tölvupóstur: erla@flensborg.is

Sími: 5650400

Júlía Jörgensen

Aðstoðarskólameistari

Tölvupóstur: julia@flensborg.is

Þjónustuaðili

Flens­borg­ar­skóli

Upplýsingar um starf

Starf

Flensborgarskólinn í Hafnarfirði leitar að öflugum kennara á starfsbraut

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.05.2026

Umsóknarfrestur

26.05.2026