Þjónustuaðili
Matvælaráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í atvinnuvegaráðuneyti
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.05.2026
Umsóknarfrestur
22.05.2026
Sérfræðingur í atvinnuvegaráðuneyti
Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu landgæða og dýraheilsu.
Í atvinnuvegaráðuneytinu starfa um 60 manns á fimm skrifstofum að verkefnum tengdum grunnatvinnuvegum þjóðarinnar.
Á skrifstofu landgæða og dýraheilsu starfar öflugt teymi sem sinnir málefnum landbúnaðar, matvæla, dýravelferðar, dýrasjúkdóma og jarðamála. Starfið snýr einna helst að innleiðingum á sviði EES-réttar, auk fjölbreyttra verkefna af ýmsum toga.
Um er að ræða starf í áhugaverðu og krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á framúrskarandi samskiptahæfni, öguð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna að innleiðingum á regluverki Evrópska efnahagssvæðisins (EES) á sviði matvæla og dýraheilbrigðis, auk almennra stjórnsýslustarfa og annarra tilfallandi verkefna sem heyra undir skrifstofuna.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla og þekking á sviði opinberrar stjórnsýslu
Haldbær þekking á regluverki Evrópska efnahagssvæðisins
Skipulagsfærni og sveigjanleiki
Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð
Rík þjónustulund, jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
Góð almenn tölvufærni og þekking á Microsoft Office 365 kerfum
Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir tilgreindar hæfniskröfur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Athygli er vakin á að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur um auglýsingu lausra starfa nr. 1000/2019. Við ráðningar í störf hjá ráðuneytinu er tekið mið af jafnréttisáætlun Stjórnarráðsins. Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Elísabet Anna Jónsdóttir
skrifstofustjóri landgæða og dýraheilsu
Tölvupóstur: elisabet.anna.jonsdottir@mar.is
Þjónustuaðili
Matvælaráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í atvinnuvegaráðuneyti
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.05.2026
Umsóknarfrestur
22.05.2026