Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur í ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

27.05.2026

Umsóknarfrestur

09.06.2026

Hjúkrunarfræðingur í ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu

Viltu vinna á stað þar sem þú færð að hafa raunveruleg áhrif, þróast faglega og vera hluti af öflugu teymi?

Við hjá ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu Landspítala leitum að hjúkrunarfræðingi sem vill taka þátt í að efla geðheilbrigðisþjónustu fyrir fólk með fjölþættan og oft flókinn vanda. Við vinnum út frá batamiðaðri nálgun þar sem virðing, traust og einstaklingsmiðuð, heildræn þjónusta eru í forgrunni.

Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna í sérhæfðu, þverfaglegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á:

  • starf með skýran tilgang

  • tækifæri til faglegrar þróunar og sérhæfingar

  • öfluga teymisvinnu og handleiðslu

  • sveigjanlegt og lærdómsríkt starfsumhverfi

  • þátttöku í að veita þjónustu sem hefur mikilvægt samfélagslegt hlutverk

  • tækifæri til að bæta lífsgæði fólks

Um starfsemina:

Ferliþjónustan samanstendur af þremur sérhæfðum teymum:

Geðteymi fangelsa: Veitir geðheilbrigðisþjónustu fyrir einstaklinga í afplánun innan fangelsa landsins.

Laufey- nærþjónusta: Þjónusta byggð á hugmyndafræði skaðaminnkunar þar sem lögð er áhersla á að mæta fólki á þeirra eigin forsendum.

Göngudeild réttar- og öryggisgeðþjónustu: Nýtt teymi í mótun sem starfar samkvæmt hugmyndafræði Forensic FACT.

Af hverju þetta starf?

Við leggjum mikla áherslu á:

  • góða þjónustu við notendur sem byggir á gagnreyndum aðferðum

  • góðan starfsanda

  • stöðugar umbætur

  • faglegt og styðjandi starfsumhverfi

Starfið er fjölbreytt, spennandi og gefandi. Um dagvinnu er að ræða en möguleiki er á vöktum í samstarfi við legudeildir geðþjónustu fyrir þau sem þess óska.

Við leggjum áherslu á markvissa og einstaklingsmiðaða starfsaðlögun og styðjum starfsfólk til vaxtar og þróunar í starfi.

Staðan er laus frá 15. júní 2026 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í þverfaglegu teymi, klínískri meðferð notenda og aðstandendastuðningi

  • Málastjórn

  • Vaktstjórn og lyfjagjafir ásamt öðrum hjúkrunartengdum verkefnum

  • Heldur utan um skipulagningu og framkvæmd verkefna og vinnur samkvæmt stöðluðum verkferlum

  • Tekur þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu

  • Þjálfun og kennsla hjúkrunarnema

  • Starfar samkvæmt öryggisverkferlum deildar

  • Stuðlar að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Einlægur áhugi á geðhjúkrun, reynsla af starfi í geðþjónustu er kostur

  • Góð samskiptahæfni

  • Jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði í starfi

  • Stundvísi, áreiðanleiki og öguð vinnubrögð

  • Færni til að skipuleggja og forgangsraða verkefnum

  • Góð almenn tölvukunnátta og geta til að læra nýjungar

  • Góð færni í íslensku og ensku, önnur tungumálakunnátta er kostur

  • Gilt ökuskírteini

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Kleppsgarður, 104 Reykjavík

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 09.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ína Rós Jóhannesdóttir

Tölvupóstur: inaros@landspitali.is

Sími: 825-3552

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur í ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

27.05.2026

Umsóknarfrestur

09.06.2026