Þjónustuaðili
Mannréttindastofnun Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lögfræðingur hjá Mannréttindastofnun Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.05.2026
Umsóknarfrestur
26.05.2026
Lögfræðingur hjá Mannréttindastofnun Íslands
Mannréttindastofnun Íslands auglýsir lausa til umsóknar stöðu lögfræðings hjá stofnuninni.
Mannréttindastofnun Íslands starfar samkvæmt lögum nr. 88/2024 en hlutverk stofnunarinnar er að efla og vernda mannréttindi á Íslandi eins og þau eru skilgreind í stjórnarskrá, lögum, alþjóðasamningum og öðrum alþjóðlegum skuldbindingum.
Mannréttindastofnun Íslands er sjálfstæð í störfum sínum og óháð fyrirmælum frá öðrum, þ.m.t. Alþingi. Stofnuninni er ætlað að vinna að því að allir, bæði opinberir aðilar og einkaaðilar, virði mannréttindi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leitað er að lögfræðingi til að koma að ýmsum lögfræðilegum verkefnum á starfssviði Mannréttindastofnunar.
Stofnunin sinnir meðal annars mannréttindaeftirliti, ráðgjöf og fræðslu, auk þess sem henni ber að leiðbeina öllum sem til hennar leita. Þá skrifar stofnunin skýrslur til alþjóðlegra eftirlitsaðila og umsagnir um ýmis mál sem varða mannréttindi. Stofnunin sinnir einnig réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Nánar er fjallað um hlutverk stofnunarinnar í 2. gr. laga nr. 88/2024.
Hæfniskröfur
Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
Áhugi og þekking á mannréttindum, þar á meðal á þeim mannréttindasamningum sem Ísland er aðili að
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Sveigjanleiki, jákvætt viðhorf og hugarfar grósku
Mjög góð samskiptahæfni
Góð tölvukunnátta
Mjög gott vald á íslensku og færni til að sjá sig í ræðu og riti
Góð enskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem forseti Alþingis og Félag starfsmanna Alþingis hafa gert.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir þær hæfniskröfur sem gerðar eru. Umsókn gildir í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Öll sem hafa áhuga eru hvött til að sækja um en við ráðningu verður tekið mið af lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði nr. 86/2018 og lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Margrét María Sigurðardóttir
framkvæmdastjóri
Tölvupóstur: margret.m.sigurdardottir@mannrettindi.is
Sími: 5208800
Þjónustuaðili
Mannréttindastofnun Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lögfræðingur hjá Mannréttindastofnun Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.05.2026
Umsóknarfrestur
26.05.2026