
Þjónustuaðili
Fjölbrautaskóli Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur á sérnámsbraut
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
85%
Starf skráð
08.05.2026
Umsóknarfrestur
18.05.2026
Sérfræðingur á sérnámsbraut
Viltu taka þátt í veita ungu fólki framúrskarandi undirbúning fyrir lífið?
Fjölbrautaskóli Suðurlands leitar að jákvæðum og metnaðarfullum sérfræðingi til starfa við sérnámsbraut skólans frá 1. ágúst 2026. Um er að ræða 85% stöðu skólaárið 2026 - 2027.
FSu er líflegur og skapandi vinnustaður með metnaðarfullu starfsfólki og góðum starfsanda.
Um 150 starfa við skólann og nemendur eru yfir 1000. Skólinn státar af fjölbreyttu námsframboði en yfir 20 námsbrautir eru í boði; bóknám, verknám, listnám auk öflugra íþróttaakademía, hestabrautar og garðyrkjunáms á Reykjum. Unnið er markvisst eftir gildum skólans sem eru fjölbreytni, sköpun, upplýsing.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna í teymi með sérkennurum að einstaklingsmiðaðri þjónustu við nemendur sérnámsbrautar.
Stuðningur við nemendur á sérnámsbraut í samstarfi við teymið.
Vinna að auknu sjálfstæði og þátttöku nemenda í daglegu lífi.
Þátttaka í skipulagi stuðnings, skráningu gagna og skýrslugerð.
Almenn upplýsingagjöf, fundarseta, samráð og teymisvinna eins og við á.
Önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Reynsla og áhugi á vinnu með fötluðum ungmennum.
Þekking og reynsla af skipulögðum og sjónrænum vinnubrögðum s.s. TEACCH eða öðrum aðferðum er kostur.
Fagleg færni, áhugi á að efla lífsgæði nemenda og auka þátttöku þeirra í samfélaginu.
Góð íslenskukunnátta.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna í teymi.
Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og jákvætt hugarfar.
Reynsla og hæfni í notkun upplýsingatækni, m.a. Office365.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum, ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur. Umsækjendur þurfa að skila inn hreinu sakavottorði skv. lögum nr. 92/2008. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út nema að umsækjandi ákveði annað.
Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er áhugasamt fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.
Starfshlutfall er 85%
Umsóknarfrestur er til og með 18.05.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Fjölbrautaskóli Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur á sérnámsbraut
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
85%
Starf skráð
08.05.2026
Umsóknarfrestur
18.05.2026