Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Aðjúnkt við Iðjuþjálfunarfræðideild

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

08.05.2026

Umsóknarfrestur

18.05.2026

Aðjúnkt við Iðjuþjálfunarfræðideild

Laust er til umsóknar hálft starf (50%) aðjúnkts við Iðjuþjálfunarfræðideild.

Helstu verkefni og ábyrgð

Við leitum að öflugum einstaklingi með góða innsýn í samspil fólks, iðju og umhverfis. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu á endurhæfingu og leiðum til að efla heilsu og velferð í nútíma samfélagi. Einnig þarf viðkomandi að hafa þekkingu á efnislegu, stjórnsýslulegu og samfélagslegu umhverfi og áhrif þess á heilsu, velferð og möguleika fólks til þátttöku í samfélaginu.

Starfið felur í sér kennslu, rannsóknir og stjórnun. Næsti yfirmaður er forseti Iðjuþjálfunarfræðideildar. Starfsvettvangur er Háskólinn á Akureyri. Staðan er veitt frá 1. júlí 2026 eða eftir samkomulagi.

Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á nám í iðjuþjálfunarfræði. Til að fá starfsréttindi sem iðjuþjálfi er nauðsynlegt að ljúka BS-prófi í iðjuþjálfunarfræði ásamt meistaranámi sem að miklu leyti er verklegt og fer fram að hluta til í fjölbreytilegu starfsumhverfi iðjuþjálfa.

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf sem nýtist í starfi er krafa.

  • Reynsla af háskólakennslu er krafa.

  • Íslenskt starfsleyfi iðjuþjálfa er krafa.

  • Reynsla af starfi innan endurhæfingar.

  • Góð samstarfshæfni, lipurð í mannlegum samskiptum ásamt góðri færni í að miðla þekkingu og að vinna í teymi.

  • Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli.

Umsókn skal fylgja:

  • Ítarleg ferilskrá.

  • Staðfest afrit af prófskírteinum á íslensku eða ensku.

  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

  • Tilnefna skal a.m.k. tvo meðmælendur og er æskilegt að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda.

Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Iðjuþjálfunarfræðideildar Háskólans á Akureyri.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

Háskólinn á Akureyri hvetur öll kyn til þess að sækja um.

Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um háskóla nr. 63/2006, laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 með síðari breytingum, og reglur fyrir Háskólann á Akureyri nr. 694/2022. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 18.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sólrún Óladóttir

forseti Iðjuþjálfunarfræðideildar

Tölvupóstur: solrun@unak.is

Sími: 4608468

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Aðjúnkt við Iðjuþjálfunarfræðideild

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

08.05.2026

Umsóknarfrestur

18.05.2026