
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi við rannsóknir á sjálfsáti og fituefnaskiptum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.05.2026
Umsóknarfrestur
01.06.2026
Doktorsnemi við rannsóknir á sjálfsáti og fituefnaskiptum
Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema til rannsókna á jafnvægi sjálfsáts og fituefnaskipta í frumum við Lífvísindasetur Háskóla Íslands.
Verkefnið er styrkt til þriggja ára af Doktorsnemasjóði Háskóla Íslands og verður unnið við Lífvísindasetur innan Læknadeildar Háskóla Íslands. Margrét Helga Ögmundsdóttir, prófessor við Læknadeild er leiðbeinandi í verkefninu.
Sjálfsát (autophagy) er niðurbrotsferli í frumum sem er mikilvægt til að viðhalda jafnvægi í starfsemi fruma. Gen sem eru nauðsynleg fyrir sjálfsát taka einnig þátt í frumuferlum óháð sjálfsáti, eins og frumudauða, stjórnun frumuskiptingar og ónæmissvörun. Það er mikilvægt að greina hlutverk sjálfátsgena í þessum líffræðilegu ferlum til að skilja áhrif þeirra á heilsu og sjúkdóma. Í verkefninu verður notast við músamódel til að greina á milli hefðbundinna og óhefðbundinna hlutverka sjálfsátsgena í sjúkdómum spendýra
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna með músamódel og við sameindafræðilegar greiningar.
Ábyrgð á framkvæmd og úrvinnslu tilrauna.
Hönnun og framkvæmd tilrauna í samstarfi við leiðbeinanda og niðurstöður unnar í samhengi við áður birt gögn.
Hæfniskröfur
Meistarapróf í lífefnafræði, sameindalífvísindum eða skyldum greinum. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst
Reynsla af vísindastörfum á rannsóknastofu með lífefnafræði-, sameindalíffræði- og frumulíffræðilegum aðferðum.
Reynsla af vinnu með músamódel og FELASA ABD próf er kostur.
Góð tölvufærni er æskileg.
Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.
Sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptafærni.
Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Læknadeild á Heilbrigðisvísindasviði og að umsóknin sé samþykkt af deild, sbr. Doktorsnám Heilbrigðisvísindastofnun
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Greinargerð, þar sem umsækjandi lýsir hvernig hann uppfyllir skilyrði starfsins, hvers vegna hann hefur áhuga á að vinna verkefnið og hugmyndum sínum um framlag til verkefnisins (hámark tvær blaðsíður).
Ferilskrá.
Staðfest afrit af prófskírteinum (grunn- og meistaranám) og einkunnadreifing.
Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer.
Yfirlit yfir birtingar.
Umsækjendum er einnig boðið að senda PDF útgáfu af meistararitgerð sinni (á hvaða tungumáli sem er), sem og aðrar birtingar sem við eiga (hámark 5 skjöl).
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Margrét Helga Ögmundsdóttir
Tölvupóstur: mho@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi við rannsóknir á sjálfsáti og fituefnaskiptum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.05.2026
Umsóknarfrestur
01.06.2026