Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd starfsmanna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

40%

Starf skráð

08.05.2026

Umsóknarfrestur

20.05.2026

Hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd starfsmanna

Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum hjúkrunarfræðingi til að sinna heilsuvernd starfsmanna hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Um er að ræða 40% starf þar sem viðkomandi gegnir lykilhlutverki í að efla heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks.

Hjúkrunarfræðingurinn mun hafa umsjón með verkefnum tengdum heilsuvernd starfsmanna með áherslu á skimanir, bólusetningar, smitvarnir og fræðslu. Starfið felur einnig í sér tækifæri til að móta og þróa starfsmannaheilsuvernd innan HH. Í hlutverkinu felst virk þátttaka í stefnumótun, umbótaverkefnum og þróun ferla sem styðja við heilbrigt og öruggt vinnuumhverfi.

Viðkomandi starfar undir framkvæmdastjóra mannauðs og vinnur náið með stjórnendum og þverfaglegum teymum. Í starfinu mun reyna á fagmennsku, frumkvæði og hæfni til að hafa jákvæð áhrif á vinnustaðamenningu og starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Framkvæma og halda utan um heilsuverndarsamtöl (valkvæð fyrir starfsmenn)

  • Skipuleggja og fylgja eftir úttektum á starfsaðstöðu, t.d. öryggi og sóttvarnir

  • Sjá um skimanir og bólusetningar, þ.m.t. fyrir nýja starfsmenn

  • Veita fræðslu og ráðgjöf um heilsu, forvarnir og lífsstíl

  • Styðja við öryggi starfsmanna og fylgja eftir atvikum og úrbótum

  • Halda yfirlit yfir langvinn veikindi og styðja stjórnendur í eftirfylgni

  • Taka þátt í öryggisnefnd HH

  • Koma að þróun ferla, stefnu og umbótaverkefna í starfsmannaheilsuvernd

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Að minnsta kosti 5 ára starfsreynsla í heilbrigðisþjónustu

  • Þekking og reynsla af sóttvörnum, forvörnum og heilsuvernd á vinnustöðum

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og fagmennska

  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun

  • Hæfni til að starfa í þverfaglegu teymi

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

  • Almenn góð tölvufærni

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 40%

Umsóknarfrestur er til og með 20.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ketill Berg Magnússon

Tölvupóstur: ketill.berg.magnusson@heilsugaeslan.is

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd starfsmanna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

40%

Starf skráð

08.05.2026

Umsóknarfrestur

20.05.2026