
Þjónustuaðili
Fjölbrautaskóli Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Vaktmaður í Iðu íþróttahúsi
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.05.2026
Umsóknarfrestur
18.05.2026
Vaktmaður í Iðu íþróttahúsi
Fjölbrautaskóli Suðurlands óskar eftir að ráða vaktmann í Iðu íþróttahús frá og með 10. ágúst 2026. Um er að ræða 100% starf á vöktum.
FSu er líflegur og skapandi vinnustaður með metnaðarfullu starfsfólki og góðum starfsanda.
Um 150 starfa við skólann og nemendur eru yfir 1000. Skólinn státar af fjölbreyttu námsframboði en yfir 20 námsbrautir eru í boði; bóknám, verknám, listnám auk öflugra íþróttaakademía, hestabrautar og garðyrkjunáms á Reykjum. Unnið er markvisst eftir gildum skólans sem eru fjölbreytni, sköpun, upplýsing.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hefur umsjón með íþróttahúsi Iðu þegar hann er á vakt.
Baðvarsla, hreinsun búningsklefa og áhorfendapalla eftir leiki og aðra notkun.
Annast viðhald sem ekki krefst fagþekkingar.
Annast ræstingu.
Hefur eftirlit með loftræsti- og hitakerfum.
Hefur umsjón með öryggismálum og fylgist með myndavélakerfum í skólahúsnæðinu.
Hefur umsjón með hreinsun, slætti og viðhaldi lóðar og bílastæða.
Aðstoðar húsvörð FSu þegar við á.
Auk ýmissa annarra verkefna sem til falla í samvinnu við húsvörð og stjórnendur.
Hæfniskröfur
Leitað er að skipulögðum og reglusömum einstaklingi með áhuga á að vinna með fólki.
Menntun í iðngrein eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi kostur.
Kostur ef umsækjandi hefur reynslu af sambærilegri vinnu, t.d. í íþróttahúsi/sundlaug.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í samvinnu.
Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði í starfi og jákvætt hugarfar.
Góð íslenskukunnátta.
Tölvukunnátta æskileg.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og fyrri störf ásamt kynningarbréfi. Mikilvægt er að tilgreina meðmælendur. Umsækjandi þarf að senda inn sakavottorð. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út nema umsækjandi ákveði annað. Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni, www.fsu.is.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.05.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Fjölbrautaskóli Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Vaktmaður í Iðu íþróttahúsi
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.05.2026
Umsóknarfrestur
18.05.2026