Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Þjóðleik­húsið

Upplýsingar um starf

Starf

Launafulltrúi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.05.2026

Umsóknarfrestur

21.05.2026

Launafulltrúi

Þjóðleikhúsið leitar að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi í starf launafulltrúa. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri þekkingu á launavinnslu og hæfni til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum á sviði launamála. Við leggjum ríka áherslu á sjálfstæð vinnubrögð, jákvætt hugarfar og góða samskiptafærni. Leitað er að einstaklingi sem er talnaglöggur, sýnir frumkvæði og getur unnið sjálfstætt og tekið virkan þátt í að auka skilvirkni launa- og mannauðsferla sem stuðlar að umbótum og framþróun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með launavinnslu og launaútreikningum

  • Skráning, afstemmingar og eftirlit með launagögnum

  • Túlkun og eftirfylgni kjarasamninga og þjónusta við stjórnendur og starfsfólk vegna launa- og kjaramála

  • Samvinna við bókhaldsteymi vegna launatengdra verkefna í uppgjörum ársins

  • Leiða reglulega endurskoðun og umbætur ferla launavinnslu og eftirfylgni

  • Samskipti og aðstoð við stjórnendur og starfsfólk

  • Samskipti við innri og ytri hagaðila varðandi launatengdar fyrirspurnir

  • Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði, þátttaka í umbótaverkefnum, sjálfvirknivæðingu og innleiðingu nýrra ferla

Hæfniskröfur

  • Reynsla af launavinnslu er skilyrði

  • Menntun sem nýtist í starfi

  • Góða almenna tölvukunnáttu og reynsla af launakerfum ástamt öðru kerfum, s.s. Microsoft kerfum og geta til að vinna með gögn. Þekking á umhverfi og launakerfum ríkisstofnana er kostur

  • Framúrskarandi skipulags- og samstarfsfærni, jákvætt viðmót og þjónustulund

  • Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

  • Við ráðningu í störf hjá Þjóðleikhúsinu er tekið mið af jafnréttisáætlun leikhússins

  • Starfsstöð er í Reykjavík og vinnutungumál er íslenska

  • Gott væri að umsækjandi gæti hafið störf eigi síðar en 1. september n.k.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá ásamt umsagnaraðilum og ítarlegt kynningarbréf

Þjóðleikhúsið áskilur sér rétt til að ráða engan umsækjanda í starfið ef hópur umsækjenda uppfyllir ekki ofangreind hæfniviðmið.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir

Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og uppruna, til að sækja um.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 21.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Þóra Gréta Þórisdóttir

framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar

Tölvupóstur: thora.thorisdottir@leikhusid.is

Eyjólfur Gíslason

mannauðsstjóri

Tölvupóstur: eyjolfur.gislason@leikhusid.is

Þjónustuaðili

Þjóðleik­húsið

Upplýsingar um starf

Starf

Launafulltrúi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.05.2026

Umsóknarfrestur

21.05.2026