
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
06.05.2026
Umsóknarfrestur
18.05.2026
Hjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á lyflækningadeild B7 í Fossvogi.
Við sækjumst bæði eftir hjúkrunarfræðingi sem býr yfir þekkingu og reynslu sem og nýútskrifuðum hjúkrunarfræðingi. Í boði er einstaklingsbundin aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Upphaf starfa sem og starfshlutfall er samkomulag.
Deildin er 18 rúma bráðalegudeild almennra lyflækninga. Þar starfa um 70 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Góður starfsandi er ríkjandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði og markvisst er unnið að umbótum og framþróun.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala. Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Rut, deildarstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn hjúkrun sjúklinga deildar
Skipuleggja hjúkrun sjúklinga og skrá meðferðir í samræmi við reglur spítalans
Fylgjast með nýjungum í faginu
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Þátttaka í þróun og umbótum í starfsemi deildarinnar
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður
Góð samskiptahæfni, jákvætt viðhorf og frumkvæði
Sjálfstæði í vinnubrögðum sem og færni til að starfa í teymi
Góð íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.05.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
06.05.2026
Umsóknarfrestur
18.05.2026