Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á bráðalyflækningadeild Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-60%

Starf skráð

07.05.2026

Umsóknarfrestur

18.05.2026

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á bráðalyflækningadeild Fossvogi

Laust er til umsóknar starf heilbrigðisritara/ skrifstofumanns sem hefur áhuga á fjölbreyttu starfi í krefjandi þverfaglegu umhverfi á bráðalyflækningadeild A2 í Fossvogi. Um er að ræða 50-60% starf í vaktavinnu, Kvöldvaktir að mestu og dagvaktir aðra hvora helgi.

Bráðalyflækningadeild er 19 rúma legudeild, ætluð sjúklingum með afmörkuð bráð og langvinn lyflæknisfræðileg vandamál sem þarfnast innlagnar á sjúkrahús og falla undir almennar lyflækningar. Á deildinni starfar samhentur þverfaglegur hópur og ríkir góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði.

Við sækjumst eftir þjónustuliprum einstaklingi sem er lausnamiðaður, með góða samskiptahæfni og sem á auðvelt með að vinna í teymi.

Starfið er laust frá 1. júní 2026 eða samkvæmt samkomulagi. Tekið er vel á móti nýju samstarfsfólki og veitt góð einstaklingshæfð aðlögun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ritari sinnir almennum og sérhæfðum ritarastörfum á deild s.s. símsvörun, upplýsingagjöf, útvegun og frágangur gagna og gagnavinnsla í tölvukerfum Landspítala

  • Ritari er jafnframt aðstoðamaður hjúkrunardeildarstjóra og er andlit deildarinnar út á við. Starfið felur í sér mikil samskipti og fjölbreytt, krefjandi verkefni.

  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og skv. ákvörðun deildarstjóra.

Hæfniskröfur

  • Heilbrigðisritaramenntun æskileg og/ eða reynsla af ritarastörfum

  • Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar, þjónustulipurð og jákvæðni

  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi og geta til að vinna undir álagi

  • Krafa um góða tölvukunnáttu

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisritari, skrifstofustarf

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5

Starfshlutfall er 50-60%

Umsóknarfrestur er til og með 18.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Inga Lúthersdóttir

Tölvupóstur: ingal@landspitali.is

Sími: 893-2306

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á bráðalyflækningadeild Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-60%

Starf skráð

07.05.2026

Umsóknarfrestur

18.05.2026