
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðilæknir í bæklunarskurðlækningum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
13.05.2026
Umsóknarfrestur
27.05.2026
Sérfræðilæknir í bæklunarskurðlækningum
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í bæklunarskurðlækningum með sérhæfingu í meðhöndlun hryggjavandamála. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá 15. júlí 2026 eða eftir samkomulagi.
Sérgreinin býður upp á líflegt og krefjandi starfsumhverfi og mikil tækifæri til starfsþróunar. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Greining, meðferð og eftirfylgd sjúklinga með vandamál er tengjast sérgreininni
Þátttaka í göngudeildarþjónustu og samráðskvaðningum og öðrum þeim störfum sem yfirlæknir deildarinnar telur að eigi við
Þátttaka í bakvöktum sérgreinarinnar samkvæmt nánari ákvörðun yfirlæknis
Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samráði við yfirlækni
Hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi í bæklunarskurðlækningum
Almenn reynsla og þjálfun í bæklunarskurðlækningum, þekking og reynsla á meðhöndlun hryggjarvandamála, bæði hryggjaráverkum og sjúkdómum í hrygg.
Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði
Hæfni og geta til að vinna í teymi
Áreiðanleiki og samviskusemi
Samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Reynsla í kennslu og vísindavinnu æskileg
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Skurðlæknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Starfsstöð er Landspítali og eftir atvikum önnur sjúkrastofnun sem yfirlæknir hefur sem starfsskyldu að manna.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir, Læknir með lækningaleyfi
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.05.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðilæknir í bæklunarskurðlækningum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
13.05.2026
Umsóknarfrestur
27.05.2026