
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Teymisstjóri ræstingaþjónustu á Landspítala
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.05.2026
Umsóknarfrestur
15.05.2026
Teymisstjóri ræstingaþjónustu á Landspítala
Ræstingaþjónusta Landspítala óskar eftir öflugum aðila í starf teymisstjóra. Leitað er að jákvæðum og ábyrgum einstaklingi með háskólamenntun sem býr yfir lipurð í mannlegum samskiptum, stundvísi og heiðarleika. Um er að ræða 100% starf í dagvinnu og er starfið laust frá 1. júní 2026.
Ræstingaþjónusta Landspítala sér um að vinna eftir skipulagi sem tryggir að húsnæði spítalans (105.000 m2) sé til fyrirmyndar og gæði ræstinga séu í samræmi við skilgreind gæði. Teymisstjóri þarf að vera með próf í Insta 800 staðlinum og einstaklingsvottun, eða fá þau réttindi innan tveggja mánaða, ásamt því að sækja kennslu og vinna eftir hreinlætisstaðlinum DS 2451 10. Hann er skoðunaraðili og á að framkvæma skoðanir í samræmi við staðlana. Teymisstjóri ber ábyrgð á skipulagi úttekta í öllu húsnæði LSH ásamt því að stýra og taka þátt í ársfjórðungslegum skoðunum.
Teymisstjóri heyrir undir deildarstjóra ræstingaþjónustu og vinnur náið með ræstingastjórum og ber ábyrgð á að starfsemin gangi skilvirkt og samkvæmt áætlun. Teymisstjóri er virkur þátttakandi í teymi deildarinnar og tekur þátt í þeim verkefnum sem upp kunna að koma, í samráði við eða samkvæmt beiðni deildarstjóra. Hann kemur jafnframt að daglegu skipulagi í samstarfi við ræstingastjóra og veitir þeim stuðning við verkefni sem falla undir þeirra ábyrgð hverju sinni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulag skoðana, vikulega á að skipuleggja auka skoðanir
Ársfjórðungslega á að skipuleggja stærri skoðanir
Samskipti við verktaka/framkvæmdaraðila
Hreingerningar, skipulag og tíðni þeirra ásamt samþykki reikninga og eftirlit með kostnaði
Ber ábyrgða á skipulagi sótthreinsiþrifa, hefur eftirlit með verklagi og árangri
Vöktun á beiðnakerfi, Main manager og viðbrögð við beiðnum af öllum tegundum þegar þörf er á
Leysir deildarstjóra af í fjarveru hans
Stuðlar að stöðugum umbótum og framþróun þjónustu deildarinnar í samstarfi við starfsfólk
Stuðlar að jákvæðum starfsanda og starfsumhverfi
Hæfniskröfur
Gerð er krafa um háskólamenntun, grunnnám BA eða BS, sem nýtist í starfi
Framhaldsnám er kostur
Jákvætt og lausnamiðað viðhorf
Sjálfstæð vinnubrögð og geta til að starfa í teymi
Þjónustulund, metnaður og frumkvæði
Góð íslensku- og enskukunnátta
Hafa unnið við eða komið að skipulagi ræstinga á sjúkrahúsum
Hafa unnið eftir gæðastöðlum í ræstingu eins og Insta 800 og DS-2451-10 eða sambærilegum stöðlum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta.Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfamerkingar: Heilbrigðisþjónusta, teymisstjóri, ræsting
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Heiða Steinsson
Tölvupóstur: heidast@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Teymisstjóri ræstingaþjónustu á Landspítala
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.05.2026
Umsóknarfrestur
15.05.2026