
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysing - Móttökuritari heilsugæslu HVE Grundafirði
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
05.05.2026
Umsóknarfrestur
15.05.2026
Sumarafleysing - Móttökuritari heilsugæslu HVE Grundafirði
HVE Grundarfirði óskar eftir starfsmanni til að sinna stöðu móttökuritara í um 4 vikur sumarið 2026. Starfshlutfall er 60-100% eða eftir samkomulagi.
Í boði er fjölbreytt, áhugavert og krefjandi starf í lifandi umhverfi þar sem reynir á góða samskiptahæfni, ríka þjónustulund og fagmennsku. Um er að ræða sumarafleysingu og upplýsingar um tímaramma má fá hjá yfirhjúkrunarfræðing stöðvarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka, afgreiðsla og samskipti við skjólstæðinga
Símsvörun, ýmis konar umsýsla, uppgjör og skráning gagna
Önnur tilfallandi verkefni
Samskipti við aðrar deildir HVE
Hæfniskröfur
Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg
Starfið krefst hæfni og lipurðar í samskiptum, trúmennsku og nákvæmni í vinnubrögðum
Góð tölvukunnátta
Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslensku máli og geta átt góð tjáskipti á ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkalýðsfélag Snæfellinga hafa gert.
Vinnutími og starfshlutfall er eftir samkomulagi við yfirhjúkrunarfræðing.
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Dagný Ósk Guðlaugsdóttir
Tölvupóstur: dagny.gudlaugsdottir@hve.is

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysing - Móttökuritari heilsugæslu HVE Grundafirði
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
05.05.2026
Umsóknarfrestur
15.05.2026