Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn við Sund

Upplýsingar um starf

Starf

Kerfisstjórn og upplýsingatækni framtíðarstarf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.05.2026

Umsóknarfrestur

22.05.2026

Kerfisstjórn og upplýsingatækni framtíðarstarf

Menntaskólinn við Sund auglýsir stöðu kerfisstjóra með umsjón yfir upplýsingatækni innan skólans. Starfið er auglýst í samræmi við reglugerð nr. 1100/2007 um starfslið framhaldsskóla. Um er að ræða framtíðarstarf frá 1. ágúst 2026. MS er framsækinn skóli með 3ja anna kerfi. Í skólanum er lögð áhersla á umhverfismál, listir og nýsköpun auk vinnu í anda leiðsagnarnáms og uppbyggingu námskrafts nemenda. Öflug starfsþróun starfsmanna er einn af áhersluþáttunum í starfi skólans þar sem byggt hefur verið upp kraftmikið erlent samstarf og starfendarannsóknir.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur í sér yfirumsjón með og ábyrgð á uppsetningu, rekstri, uppfærslu og öryggi tækniinnviða skólans, þar á meðal sýndarvélaumhverfi, Active Directory, netkerfi og gagnaþjónum. Kerfisstjóri sér um tækjastjórnun í blönduðu Windows- og Apple-umhverfi, þróar sérsniðnar lausnir og stuðlar að sjálfvirknivæðingu ýmissa ferla í samstarfi við annað starfsfólk. Undir umsjón með upplýsingatækni fellur fræðsla og stuðningur starfsfólks og nemenda auk eflingar stafrænnar færni. Upplýsingatækni er stór hluti af daglegu skólastarfi, aðstoða þarf nemendur og starfsfólk með tölvur og tækni og halda utan um allan tæknibúnað skólans, hugbúnaðarmál auk þess að sinna tengiliðshlutverki við ytri kerfi eins og Menntaský og Innu. Önnur störf samkvæmt starfslýsingu.

Hæfniskröfur

  • Reynsla og þekking á tölvumálum og aðgangsstýringu

  • Þekking á sýndarvélaumhverfi og Active Directory.

  • Þekking á Windows og Apple umhverfum með skýjalausnum (MDM).

  • Forritunargeta til að viðhalda sérsniðnum innri þjónustum, API samþættingum og sjálfvirknihandrritum.

  • Tæknileg færni og áhugi til að viðhalda og þróa áfram AI-lausnir skólans.

  • Færni til að hafa umsjón með öryggi tölvukerfa skólans.

  • Færni á uppsetningu og viðhaldi á innri myndavélakerfum og gagnaþjónum.

  • Hæfni í notkun upplýsingatækni til að auka sjálfstæði notenda.

  • Haldgóð þekking á Office 365.

  • Hæfni og vilji til að efla stafræna framleiðslu (vínilskera og þrívíddarprentara).

  • Faglegur metnaður, frumkvæði og jákvætt hugarfar.

  • Hæfni og vilji til þess að vinna með ungmennum.

  • Rík þjónustulund og framúrskarandi samskiptahæfni.

  • Menntun á sviði upplýsingatækni er æskileg.

  • Góð kunnátta í íslensku.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag tölvunarfræðinga hafa gert.

Um er að ræða framtíðarstarf í framsæknum og metnaðarfullum framhaldsskóla. Starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi viðeigandi stéttarfélags og ríkisins og nánari útfærslu í stofnanasamningi Menntaskólans við Sund. Öllum umsóknum verður svarað. Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Kynningarbréf

  • Náms- og starfsferilsskrá

  • Afrit af prófskírteinum ef við á

  • Nýtt sakavottorð

  • Upplýsingar um umsagnaraðila sem hafa má samband við

Tekið er mið af jafnréttisáætlun MS við ráðningar í störf við skólann og eru öll kyn hvött til að sækja um starfið. Á heimasíðu skólans http://www.msund.is er að finna ýmsar upplýsingar um skólann, stefnu hans og starfsemi.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helga Sigríður Þórsdóttir

rektor

Tölvupóstur: helgath@msund.is

Leifur Ingi Vilmundarson

konrektor

Tölvupóstur: leifuriv@msund.is

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn við Sund

Upplýsingar um starf

Starf

Kerfisstjórn og upplýsingatækni framtíðarstarf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.05.2026

Umsóknarfrestur

22.05.2026