Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Heilbrigðisgagnafræðingur - Heilsugæslan Hlíðum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

07.05.2026

Umsóknarfrestur

21.05.2026

Heilbrigðisgagnafræðingur - Heilsugæslan Hlíðum

Langar þig að koma og starfa á nýrri og glæsilegri heilsugæslustöð?

Við hjá Heilsugæslunni Hlíðum leitum að jákvæðum og drífandi heilbrigðisgagnafræðingi til að koma til liðs við okkur. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt í starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Á Heilsugæslunni starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á þverfaglega teymisvinnu.

Hlutverk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan byggir á sérþekkingu fagstétta og víðtæku þverfaglegu samstarfi.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber ábyrgð á ritun og umsýslu sjúkragagna vegna skjólstæðinga og í samvinnu við annað samstarfsfólk

  • Sér um móttöku, skráningu, skönnun og meðferð gagna í sjúkraskrárkerfinu Sögu

  • Sinnir lyfjaendurnýjun í lyfjasíma og Heilsuveru

  • Kemur að flokkun og svörun fyrirspurna í Heilsuveru

  • Samskipti við skjólstæðinga, aðrar heilbrigðisstofnanir, tryggingarfélög, lögfræðinga og fleiri

  • Aðstoðar í móttöku eftir þörfum

  • Önnur tilfallandi störf

Hæfniskröfur

  • Nám í heilbrigðisgagnafræði

  • Starfsleyfi frá Embætti landlæknis

  • Reynsla af ritarastarfi kostur

  • Þekking og reynsla af upplýsinga- og skjalastjórnun

  • Reynsla og þekking af Sögukerfi æskilegt

  • Reynsla af Heilsugátt kostur

  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar, rík þjónustulund og jákvætt hugafar

  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð

  • Góð almenn tölvukunnátta skilyrði

  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

  • Góð almenn enskukunnáttu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram afrit af leyfisbréfi og prófskírteinum ásamt hreinu sakavottorði. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 21.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hildur Svavarsdóttir

Tölvupóstur: hildur.svavarsdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-5900

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Heilbrigðisgagnafræðingur - Heilsugæslan Hlíðum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

07.05.2026

Umsóknarfrestur

21.05.2026