
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðingur fullorðinna - Heilsugæslan Hlíðum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
07.05.2026
Umsóknarfrestur
21.05.2026
Sálfræðingur fullorðinna - Heilsugæslan Hlíðum
Við hjá heilsugæslunni Hlíðum leitum að jákvæðum og metnaðarfullum sálfræðingi til að koma til liðs við okkur. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi vettvangi, fyrir sálfræðing sem hefur áhuga á að taka þátt í framþróun í geðheilsumálum innan heilsugæslu og vill stuðla að heilbrigði líðan einstaklinga. Lögð er áhersla á að sálfræðingar HH fái handleiðslu og símenntun í faginu. Um er að ræða 80% ótímabundið starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Á Heilsugæslunni starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á þverfaglega teymisvinnu.
Hlutverk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan byggir á sérþekkingu fagstétta og víðtæku þverfaglegu samstarfi.
Til greina getur komið að ráða tímabundið áhugasaman reynsluminni sálfræðing í ábyrgðarminna starf fáist ekki sálfræðingur með reynslu í starfið.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Sálfræðiþjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri
Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf
Einstaklings- og hópmeðferð
Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla
Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði æskileg
Virk þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu
Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
Hæfniskröfur
Starfsleyfi útgefið af embætti landlæknis til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði
3 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg
Þekking og reynsla af gagnreyndum aðferðum
Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
Reynsla af starfi með túlki
Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Góð enskukunnátta æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram afrit af leyfisbréfi og prófskírteinum ásamt hreinu sakavottorði. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 21.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Anna Ólafsdóttir
Tölvupóstur: anna.olafsdottir@heilsugaeslan.is

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðingur fullorðinna - Heilsugæslan Hlíðum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
07.05.2026
Umsóknarfrestur
21.05.2026