
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starf í þjónustumiðstöð heilbrigðis- og upplýsingatækni
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.05.2026
Umsóknarfrestur
18.05.2026
Starf í þjónustumiðstöð heilbrigðis- og upplýsingatækni
Við leitum að lausnamiðuðum og jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund í teymið okkar. Hlutverk teymisins er að veita öðru starfsfólki spítalans þjónustu á sviði heilbrigðis- og upplýsingatækni. Við aðstoðum notendur í gegnum síma, leysum mál á vettvangi, ráðleggjum með búnað, veitum aðgang að kerfum og grúskum í flóknum málum sem upp koma.
Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi enda rekur Landspítali eitt stærsta og flóknasta tækniumhverfi landsins. Starfshlutfall er 100% og um dagvinnutíma er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Hjá þjónustumiðstöð starfa 37 einstaklingar, en deildin er hluti af þróunarsviði sem ber ábyrgð á tölvubúnaði og tölvukerfum spítalans ásamt öllum lækningatækjabúnaði.Hlutverk þróunarsviðs er að styðja sem best við starfsemi spítalans með tæknilausnum og leiða stafræn framþróunarverkefni sem miða að hærra þjónustustigi og aukinni skilvirkni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Tækni- og notendaþjónusta í síma og á vettvangi
Greining og úrlausn erinda í beiðnakerfum
Þátttaka í innra umbótastarfi og tilfallandi verkefnum
Hæfniskröfur
Þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum
Greiningarhæfni, sjálfstæð og lausnarmiðuð vinnubrögð
Mjög góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg
Þekking á Microsoft umhverfi
Menntun sem nýtist í starfi er kostur
Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
Gott vald á íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá, kynningarbréf, afrit af prófskírteinum og starfsleyfi, eftir því sem við á. Fylgiskjöl skulu vera á PDF-formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklinga starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, tölvunarfræðingur, kerfisfræðingur
Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 3/5
Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Soffía Bæringsdóttir
Tölvupóstur: soffiabae@landspitali.is
Sigrún Eyjólfsdóttir
Tölvupóstur: sigruney@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starf í þjónustumiðstöð heilbrigðis- og upplýsingatækni
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.05.2026
Umsóknarfrestur
18.05.2026