Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Móttökuritari - Djúpivogur - Heilsugæsla

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.05.2026

Umsóknarfrestur

15.05.2026

Móttökuritari - Djúpivogur - Heilsugæsla

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða móttökuritara á heilsugæsluna á Djúpavogi. Starfshlutfall er 100% eða skv. samkomulagi og staðan veitist frá 1. júní næstkomandi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Símsvörun og vinna með afgreiðslukerfi við móttöku skjólstæðinga heilsugæslunnar. Daglegt uppgjör sjóðvéla. Afhending lyfjapantana. Húsumsjón og þrif á heilsugæslustöðinni.

Hæfniskröfur

Krafist er tölvukunnáttu, tölulæsis og ríkrar þjónustulundar. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin og kunnátta í ensku og fleiri tungumálum æskileg. Almennra ökuréttinda krafist.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Eygerður Ósk Tómasdóttir

Tölvupóstur: eygerdur.o.tomasdottir@hsa.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Móttökuritari - Djúpivogur - Heilsugæsla

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.05.2026

Umsóknarfrestur

15.05.2026