
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirlæknir fæðingarteymis
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.05.2026
Umsóknarfrestur
26.05.2026
Yfirlæknir fæðingarteymis
Starf yfirlæknis fæðingarteymis Landspítala er laust til umsóknar. Yfirlæknir er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi; þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð. Auk þess gegnir yfirlæknir mikilvægu hlutverki í kennslumálum og uppbyggingu vísindastarfs. Næsti yfirmaður er forstöðulæknir kvenna- og barnaþjónustu.
Leitað er eftir sérfræðilækni í fæðingarlækningum með reynslu og hæfni til að vera í forystu fyrir þjónustu við sjúklinga, umbótastarf, öryggismál og uppbyggingu mannauðs í nánu samstarfi við forstöðulækni, framkvæmdastjóra og annað starfsfólk. Gerð er krafa um helgun í starfi yfirlæknis. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið 1. ágúst 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun fæðingarlækninga, þ.m.t. kennslumál og vísindastarf
Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði einingarinnar
Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á einingunni
Hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum
Reynsla í fæðingarlækningum
Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð
Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Leiðtogahæfileikar og vilji til að leiða breytingar og umbætur
Reynsla af kennslu og vísindastörfum og skýr framtíðar á þeim sviðum
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af prófskírteinum.
Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á).
Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum.
Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum.
Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.
Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á heildarmati hæfni og frammistöðu í viðtali. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, yfirlæknir, sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 5/5
Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Dögg Hauksdóttir
Tölvupóstur: dogghauk@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirlæknir fæðingarteymis
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.05.2026
Umsóknarfrestur
26.05.2026