
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi í félagsfræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.05.2026
Umsóknarfrestur
11.06.2026
Doktorsnemi í félagsfræði
Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við námsbraut í félagsfræði. Starfið er styrkt af Rannsóknarsjóði Rannís til þriggja ára, innan rannsóknarverkefnisins DIGICE: Stafræn samfélög, tækni og gervigreind (Digital Societies, Technology and Artificial Intelligence). Verkefnið beinir sjónum að viðhorfum almennings til stafrænnar þróunar, tækni og gervigreindar. Sérstök áhersla er á hvernig stafrænar breytingar geta minnkað, aukið eða viðhaldið ójöfnuði og pólitískum klofningi innan og á milli samfélaga. Verkefnið skoðar notkun og getu varðandi ólíkrar tæknilausnir, allt frá tölvum og interneti yfir í gervigreind. Grunnurinn að verkefninu kemur frá Alþjóðlegu viðhorfakönnuninni (International Social Survey Programme) en árið 2024 var áherslan í þeirri könnun á stafræn samfélög. Til að öðlast dýpri skilning á viðfangsefninu verður eigindlegum gögnum safnað á Íslandi. Rannsókninni verður stýrt af aðalleiðbeinanda doktorsnemans, dr. Sigrúnu Ólafsdóttur, prófessor í félagsfræði, en doktorsneminn verður hluti af stærra rannsóknarteymi innlendra og erlendra sérfræðinga.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í rannsóknarvinnu í samstarfi við aðalleiðbeinenda og rannsóknarteymi.
Greining á megindlegum gögnum úr alþjóðlegu viðhorfakönnuninni.
Gagnaöflun og greining á eigindlegum gögnum.
Miðlun rannsóknarniðurstaðna, einkum í formi doktorsritgerðar (3 greina í viðurkenndum vísindatímaritum), en einnig í formi þátttöku í fræðasamfélagi og samfélagi doktorsnema í HÍ, fyrirlestrum á alþjóðlegum ráðstefnum og miðlun meðal almennings.
Hæfniskröfur
Meistarapróf í félagsfræði eða skyldum greinum með að lágmarki fyrstu einkunn. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.
Hafa lokið námskeiðum á háskólastigi um eigindlegar og megindlegar rannsóknir.
Reynsla af framkvæmd og greiningu á megindlegum eða eigindlegum rannsóknargögnum er æskileg, til dæmis í gegnum lokaritgerðir í háskólanámi (BA og/eða MA).
Góð enskukunnátta.
Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Starfskjör og -skilyrði:
Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild á Félagsvísindasviði og að umsóknin sé samþykkt af deild.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókninni:
Kynningarbréf (um það bil 2 blaðsíður) á ensku þar sem fram kemur hvað vekur áhuga umsækjanda á verkefninu og hvað viðkomandi hefur fram að færa við mótun og vinnslu þess.
Ferilskrá (1-2 bls.) á ensku þar sem fram kemur starfsreynsla, hæfni tengd verkefninu og ritaskrá ef við á.
Staðfest afrit af prófskírteinum (BA/BSc og MA/MSc) og námsferilyfirlit.
Afrit af meistararitgerð eða rannsóknargreinum ef við á.
Tvö meðmælabréf og upplýsingar um hvernig nálgast megi umsagnaraðilana.
Aðrar upplýsingar:
Umsóknin á að vera á ensku.
Doktorsneminn þarf að geta byrjað sem fyrst og eigi síðar en 01.01.2027.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.06.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi í félagsfræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.05.2026
Umsóknarfrestur
11.06.2026