Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Forstöðumaður Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.04.2026

Umsóknarfrestur

11.05.2026

Forstöðumaður Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, HH, leitar að metnaðarfullum leiðtoga með skýra framtíðarsýn í starf forstöðumanns Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu, ÞÍH. Starfsemi ÞÍH er víðtæk og gegnir lykilhlutverki í þróun og eflingu heilsugæslu á landsvísu. Hún nær til margvíslegra sviða, þar á meðal mæðra- og barnaverndar, geðheilbrigðis, lyfjamála og endurhæfingar. Með markvissri gæðaþróun, gagnadrifinni ákvarðanatöku, fræðslu og samþættingu þjónustu stuðlar ÞÍH að betri heilsu og aukinni velferð samfélagsins.

Hlutverk ÞÍH er skilgreint í reglugerð nr. 1111/2020 og nr. 1450/2020. Forstöðumaður heyrir undir forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og ber ábyrgð á rekstri í samræmi við skipulag heilsugæslunnar. Um er að ræða 100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júní eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Háskólapróf á heilbrigðissviði, framhaldsnám skilyrði

  • Starfsleyfi frá Embætti landlæknis skilyrði

  • Þekking og reynsla af starfi innan heilsugæslunnar

  • Reynsla og þekking af vísindavinnu, gæðaþróun, verkefnastjórnun og kennslu

  • Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar og reksturs

  • Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi

  • Frumkvæði, skipulagshæfni og jákvætt viðmót

  • Hæfni og áhugi til að leiða þverfaglegan hóp heilbrigðisfólks

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

  • Góð hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku

Hæfniskröfur

  • Ber ábyrgð á áætlanagerð, fjármálum, mannauðsmálum og rekstri ÞÍH

  • Hefur forystu á sviði þróunar og vísindarannsókna og stuðlar að aukinni sérþekkingu á sviði heilsugæslu

  • Er leiðandi í að samræma og efla gæði heilsugæsluþjónustu á landsvísu

  • Ber ábyrgð á þróun og samhæfingu gæða- og árangursvísa

  • Hefur forystu varðandi þróun verkferla og klínískra leiðbeininga

  • Stuðlar að jákvæðri vinnustaðamenningu meðal starfsfólks

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 11.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigríður Dóra Magnúsdóttir

Forstjóri

Tölvupóstur: sigridur.d.magnusdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513 5000

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Forstöðumaður Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.04.2026

Umsóknarfrestur

11.05.2026