Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á rannsóknarstofu HSU í Vestmannaeyjum

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

30.04.2026

Umsóknarfrestur

11.05.2026

Sjúkraliði á rannsóknarstofu HSU í Vestmannaeyjum

Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða lausnamiðaðan, drífandi og jákvæðan sjúkraliða í fjölbreytt starf á Rannsóknarstofu HSU í Vestmannaeyjum. Um er að ræða nýtt starf sem viðkomandi fær tækifæri til að taka þátt í að móta. Starfið innfelur meðal annars blóðtökur og frágang sýna auk annarra tilfallandi verkefna. Unnið er í teymi með lífeindafræðingum sem starfa á rannsóknarstofu auk starfsfólks heilsugæslunnar í Vestmannaeyjum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Blóðtökur, móttaka og frágangur sýna inni á rannsóknarstofu HSU

  • Tölvuvinna og fleiri tilfallandi verkefni inni á rannsóknarstofu HSU í Vestmannaeyjum

  • Tilfallandi aðstoð á heilsugæslu

  • Önnur störf sem falin eru af yfirmanni

Hæfniskröfur

  • Sjúkraliðamenntun eða önnur heilbrigðismenntun sem nýtist í starfi er skilyrði

  • Reynsla í blóðtökum er kostur

  • Góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf

  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi

  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun

  • Vilji til að vinna samkvæmt stefnum og gildum HSU

  • Gott orðspor

  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

  • Mjög góð almenn tölvukunnátta er skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Starfshlutfall er 50%, vinnutíminn er fyrir hádegi virka daga.

Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Þjónustusvæði HSU nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri. Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni. Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Heilbrigðisstofnun Suðurlands er leiðandi afl í heilbrigðisþjónustu og hjá okkur færðu tækifæri til að vaxa. Við vinnum markvisst eftir skýrri stefnu, leggjum áherslu á nýsköpun og gefum þér svigrúm til að láta hugmyndir verða að veruleika. Hjá okkur hefur þú áhrif, færð að þróast í starfi og vinnur í umhverfi sem leggur áherslu á traust, gæði, öryggi og ábyrgan rekstur.

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 11.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Lóa Björk Óskarsdóttir

Deildarstjóri

Tölvupóstur: loa.b.oskarsdottir@hsu.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á rannsóknarstofu HSU í Vestmannaeyjum

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

30.04.2026

Umsóknarfrestur

11.05.2026