
Þjónustuaðili
FVA
Upplýsingar um starf
Starf
Kennsla í rafvirkjun
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.05.2026
Umsóknarfrestur
11.05.2026
Kennsla í rafvirkjun
Í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi (FVA) er laust til umsóknar starf kennara í rafvirkjun
FVA er framsækinn og traustur framhaldsskóli sem starfar samkvæmt þremur gildum; jafnrétti, virðingu og fjölbreytileika. Nemendur eru um 470 og starfsfólk skólans um 70. Flestir nemendur koma frá Akranesi og nágrannasveitarfélögum og við skólann er starfrækt heimavist. Námsframboð er fjölbreytt, bæði í bók- og verknámi og starfsmannahópurinn er kraftmikill og metnaðarfullur. Áhersla er lögð á lýðræðislega kennslu- og stjórnunarhætti og notalegan skólabrag í samræmi við gildi skólans.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla og námsmat í bóklegum og verklegum rafiðngreinum
Skapa faglegt og hvetjandi námsumhverfi
Hæfniskröfur
Menntun í rafvirkjun og/eða rafeindavirkjun
Leyfisbréf kennara
Kennslureynsla er æskileg
Faglegur metnaður og jákvætt hugarfar
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Kynningarbréf
Ferilskrá
Upplýsingar um umsagnaraðila sem má hafa samband við
Afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi
Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisáætlun FVA við ráðningar í störf við skólann.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.05.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
FVA
Upplýsingar um starf
Starf
Kennsla í rafvirkjun
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.05.2026
Umsóknarfrestur
11.05.2026