
Þjónustuaðili
Barna- og fjölskyldustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í fagteymi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.04.2026
Umsóknarfrestur
11.05.2026
Sérfræðingur í fagteymi
Barna- og fjölskyldustofa leitar að öflugum sérfræðingum í fagteymi á nýju sviði búsetu og samþættrar þjónustu. Um er að ræða tvö 100% stöðugildi. Barna- og fjölskyldustofa veitir og styður við þjónustu í þágu barna og stuðlar að gæðaþróun í samræmi við bestu þekkingu og reynslu á hverjum tíma. Störfin heyra undir framkvæmdarstjóra fagteymis. Starfsstöð er í Borgartúni 29 í Reykjavík en starfið getur krafist þess að viðkomandi ferðist um landið.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að taka þátt í afgreiðslu, mati og úrvinnslu umsókna.
Að veita starfsfólki barnaverndarþjónustu og málastjórum ráðgjöf vegna barna með fjölþættar stuðningsþarfir og umsókna í búsetuúrræði sviðsins.
Að sinna ráðgjöf, fræðslu og handleiðslu til starfsfólks búsetuúrræða.
Að veita stuðning, fræðslu og þjálfun til starfsfólks í búsetuúrræðum.
Þátttaka í þróun og stefnumótun nýrra búsetuúrræða.
Önnur tilfallandi verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni.
Hæfniskröfur
BA/BS próf sem nýtist í starfi, t.d. þroskaþjálfi, ráðgjafi í hagnýtri atferlisfræði eða sambærilegt.
Framhaldsnám eða viðbótardiplóma á háskólastigi sem nýtist í starfi.
Reynsla af störfum með börnum með fjölþættar stuðningsþarfir og fjölskyldum þeirra er kostur.
Þekking og/eða reynsla af starfi barnaverndar er kostur.
Þekking á gagnreyndum aðferðum í þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir er kostur.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
Sveigjanleiki og þjónustulund.
Góð íslensku og ensku kunnátta í mæltu og rituðu máli.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við úrvinnslu umsókna gildir mat Barna- og fjölskyldustofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Vakin er athygli á að stofan aflar sjálf upplýsinga úr sakaskrá áður en viðkomandi hefur störf. Barna- og fjölskyldustofa hvetur öll til að sækja um óháð kyni.
Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem gerðar eru. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Allar umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Eiríkur K. Þorvarðarson
framkvæmdastjóri sviðs búsetu og samþættrar þjónustu
Tölvupóstur: eirikur.k.thorvardarson@bofs.is
Sími: 530-2600

Þjónustuaðili
Barna- og fjölskyldustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í fagteymi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.04.2026
Umsóknarfrestur
11.05.2026