Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraflutningamaður Ólafsvík

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

0%

Starf skráð

30.04.2026

Umsóknarfrestur

13.05.2026

Sjúkraflutningamaður Ólafsvík

Heilbrigðisstofnun Vesturlands óskar eftir sjúkraflutningamanni til starfa til að sinna bakvöktum og útköllum.

Viðkomandi þarf að vera reiðubúinn til að hefja nám sem sjúkraflutningsmaður ef menntunarkröfur eru ekki uppfylltar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Meta áverka eftir slys, veita fyrstu hjálp og flytja sjúklinga á sjúkrastofnun ef með þarf. Sinnir útköllum í neyðartilvikum svo sem við bíl eða flugslys, umhverfisslys eða veðurofsa ásamt bráðaveikinda.

  • Umhirða sjúkrabíla og umsjón með að allur búnaður sé til staðar og í lagi.

  • Aðstoð við vinnu á heilsugæslu/læknis eftir þörfum. Í starfinu er notaður búnaður á borð við hjartalínurita, hjartastuðtæki, öndunargrímur og fleira sem nýtist við að aðstoða sjúklinga.

  • Sjúkraflutningamenn þurfa að geta unnið undir talsverðu álagi sem tengist því að koma að fólki í mjög erfiðum aðstæðum.

  • Í starfi sjúkraflutningamanns er mikilvægt að þekkja faglegar takmarkanir og virða þagnarskyldu þegar við á.

  • Unnið eftir gildandi lögum og reglugerðum og starfsreglum stofnunarinnar.

Hæfniskröfur

  • Viðurkennt nám í sjúkraflutningum og starfsleyfi landlæknis er kostur.

  • Gilt ökuskírteini er skilyrði og kostur að vera með gild ökuréttindi til að stjórna vörubifreið (C eða C1-réttindi).

  • Reynsla af störfum sjúkraflutningamanna er ákjósanlegt og/eða reynsla af öðrum störfum í heilbrigðisgeiranum.

  • Góð íslensku og ensku kunnátta er skilyrði.

  • Gerð er krafa um áreiðanleika í starfi, hæfni til að sinna fjölbreyttum verkefnum og góða færni í mannlegum samskiptum.

  • Sjúkraflutningamaður þarf að vera í góðu líkamlegu og andlegu formi.

  • Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafa gert.

Nauðsynleg fylgiskjöl: Prófskírteini, Ljósrit af ökuskírteini, ökuferilsskrá og almenn ferilskrá, sakavottorð.

Umsækjendur geta verið prófaðir í almennum akstri en í því felst aksturslag, lipurð í umferðinni, reynsla og þekking á umferðarreglum.

Starfshlutfall er 0%

Umsóknarfrestur er til og með 13.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Patryk Zolobow

Tölvupóstur: patryk.zolobow@hve.is

Sími: 432-1360

Sigurður Einar Sigurðsson

Tölvupóstur: sigurdur.e.sigurdsson@hve.is

Sími: 432-1000

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraflutningamaður Ólafsvík

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

0%

Starf skráð

30.04.2026

Umsóknarfrestur

13.05.2026