Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi við rannsóknarverkefnið Gott líf innan þolmarka jarðarinnar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.05.2026

Umsóknarfrestur

26.05.2026

Doktorsnemi við rannsóknarverkefnið Gott líf innan þolmarka jarðarinnar

Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við rannsóknarverkefnið Gott líf innan þolmarka jarðarinnar. Verkefnið er styrkt af RANNÍS til 3ja ára og er innan Umhverfis- og byggingarverkfræðideildar eða þverfræðilegrar námsbrautar í Umhverfis- og auðlindafræði (með möguleika á að vera doktorsnemi á Verkfræði- og náttúruvísindasviði eða Félagsvísindasviði).

Doktorsneminn mun verða hluti af þverfræðilegu rannsóknarteymi sem starfar á sviðum sjálfbærnisvísinda, visthagfræði, stefnugreininga, og félags-tækni-hagfræðilegra kerfisgreininga. Starfið veitir tækifæri til að taka þátt í framsæknum rannsóknum á einu brýnasta vandamáli samtímans: að tryggja velferð mannkyns innan þolmarka jarðarinnar.

Kerfi sem uppfylla grunnþarfir íbúa, ss samgöngu, fæðu og húsnæðiskerfi byggja á notkun náttúruauðlinda og hafa umtalsverð umhverfisáhrif. Hingað til hafa rannsóknir metið áhrif á umhverfi- og auðlindir og hvernig uppfylla má grunnþarfir allra í sitthvoru lagi. Þetta rannsóknarverkefni sameinar bæði sjónarmiðin í samhengi sjálfbærni, það er metur hvernig uppfylla má grunnþarfir allra innan þolmarka jarðar til framtíðar.

Rannsóknarverkefnið hverfist um að meta hvernig kerfi, svo sem samgöngur, húsnæði, matur, heilsa, upplýsingatækni og menntun, geta tryggt velferð en á sama tíma tryggt að kerfin leiði ekki til umhverfisáhrifa sem fara yfir þolmörk. Verkefnið byggir á eldra rannsóknarverkefni þar sem greiningarrammi fyrir þróun öruggra og léttlátra kerfa í samhengi sjálfbærni var mótaður. Í rannsóknarverkefninu verða kerfin og þróun þeirra metin með eigindlegum greiningum, félags- hagfræðilegum greiningum og kerfisgreiningum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í fjölþjóðlegu þverfræðilegu rannsóknarverkefni sem hefur að markmiði að skilja hvernig hægt er að uppfylla grunnþarfir allra innan þolmarka jarðarinnar.

  • Greina með eigindlegum rannsóknaraðferðum samfélagslegar, tæknilegar og efnahagslegar víddir sem hafa áhrif á breytingar á kerfum í átt að aukinni sjálfbærni, auk þess að greina þær hindranir sem standa í vegi fyrir kerfisbreytingum.

  • Greining á núverandi stefnum og aðgerðaáætlunum sem hafa áhrif á þróun valinna kerfa.

  • Skipulagning og þátttaka í vinnustofum og viðtölum við hagsmunaðila.

  • Þróun sviðsmynda fyrir stefnumótun með tengingu við kvik kerfislíkön.

  • Birting vísindagreina og kynningar á niðurstöðum í samvinnu við rannsóknarteymið.

  • Þátttaka í að miðla innsýn til stefnumótenda og styðja við betur upplýsta ákvörðunartöku í samhengi sjálfbærni, velsældar og réttlátra umskipta innan þolmarka jarðar.

Hæfniskröfur

  • Meistaragráða í verkfræði, hagfræði, umhverfis- og auðlindafræði, stefnugreiningum eða öðrum félagsvísindum, eða af öðru viðeigandi sviði. Meistaragráðu skal vera lokið þegar starf hefst.

  • Þekking á eigindlegum rannsóknaraðferðum sem og kvikum kerfisgreiningum er kostur.

  • Sjálfstæð vinnubrögð og geta unnið náið með rannsóknarteymi verkefnisins, sem og rannsóknarteymum á Spáni og í Kenía.

  • Góð samskipta- og rithæfni.

  • Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.

Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám í umhverfisfræði innan Umhverfis- og byggingarverkfræðideildar eða í þverfræðilegt doktorsnám í Umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands og að umsóknin sé samþykkt af viðkomandi deild.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf 01.09.2026 eða samkvæmt samkomulagi.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn á ensku:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum og námsyfirliti (BS og MS gráður)

  • Upplýsingar um tvo umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 26.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Brynhildur Davíðsdóttir

Prófessor

Tölvupóstur: bdavids@hi.is

Jukka Taneli Heinonen

Prófessor

Tölvupóstur: heinonen@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi við rannsóknarverkefnið Gott líf innan þolmarka jarðarinnar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.05.2026

Umsóknarfrestur

26.05.2026