
Þjónustuaðili
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu
Upplýsingar um starf
Starf
Kennari á framhaldsskólabraut
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
40%
Starf skráð
29.04.2026
Umsóknarfrestur
11.05.2026
Kennari á framhaldsskólabraut
Í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu er lögð áhersla á að þjóna þörfum nemenda á persónulegan hátt með sveigjanlegu námsframboði. Fjarnám og tölvutengt nám er mikilvægur hluti náms við skólann og fer sífellt vaxandi.
Skólinn er í samstarfi við aðra framhaldsskóla um fjarnám. Markmið er fyrst og fremst að bæta aðgengi nemenda að eins fjölbreyttu námsframboði og kostur er og tryggja þeim sem bestan undirbúning undir frekara nám eða störf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leitað er eftir kennara til kennslu á framhaldsskólabraut, meðal kennslugreina er stærðfræði og fjármálalæsi.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu uppfylla kröfur um menntun og hæfni skv. lögum nr. 95/2019.
Háskólamenntun sem nýtist við kennslu og þekking og reynsla af nemendum með sérþarfir og skóla margbreytileikans.
Eiga sögu um góð og jákvæð samskipti í starfi.
Hafa reynslu af kennslu eða vinnu með ungu fólki.
Búa yfir faglegum metnaði, frumkvæði, öguðum vinnubrögðum og jákvæðu hugarfari.
Mjög góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
Sérstaklega er horft til þess að kennari sýni frumkvæði í starfi, hafi góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum. Viðkomandi þarf að geta verið hluti af faglegu og hvetjandi námsumhverfi.
Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum skólans. Við skólann er öflugt lærdómssamfélag og mikið lagt upp úr samstarfi kennara innan veggja skólans.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is) með tilheyrandi fylgigögnum, s.s. leyfisbréfi, ferilskrá, prófskírteinum og öðrum upplýsingum sem umsækjanda þykir skipta máli.
Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um menntun (staðfest afrit af prófskírteinum), afrit af leyfisbréfi til að nota starfsheitið kennari, upplýsingar um fyrri störf og tilgreina skal meðmælendur. Fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið.
Skólameistari mun óska eftir umboði til að kalla eftir upplýsingum úr sakaskrá áður en gengið er frá ráðningu.
Starfshlutfall er 40%. Hugsanlegt er að auka starfshlutfallið með öðrum störfum innan skólans.
Auglýsingin gildir í sex mánuði.
Starfshlutfall er 40%
Umsóknarfrestur er til og með 11.05.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu
Upplýsingar um starf
Starf
Kennari á framhaldsskólabraut
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
40%
Starf skráð
29.04.2026
Umsóknarfrestur
11.05.2026