
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Heilbrigðisgagnafræðingur - Áhugavert starf á brjóstaskurðlækningadeild á Brjóstamiðstöð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
30.04.2026
Umsóknarfrestur
18.05.2026
Heilbrigðisgagnafræðingur - Áhugavert starf á brjóstaskurðlækningadeild á Brjóstamiðstöð
Í boði er áhugavert starf heilbrigðisgagnafræðings við umsjón og skipulag á brjóstaskurðlækningadeild ásamt skráningu heilbrigðisgagna og undirbúningi þverfaglegra samráðsfunda. Við sækjumst eftir skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund og sem á auðvelt með að vinna í teymi.
Brjóstaskurðlækningar er sjálfstæð sérgrein innan Brjóstamiðstöðvar Landspítala á Eiríksgötu 5. Á Brjóstamiðstöð starfar öflugt teymi sérfræðinga frá mörgum sérgreinum og fagstéttum. Þjónustan er í stöðugri þróun þar sem mikil áhersla er lögð á þjónustumiðaða nálgun og tæknivæðingu eininga.
Á einingunni er lögð sterk áhersla á teymisvinnu og uppbyggingu mannauðs með það í huga að byggja upp skemmtilegan vinnustað með möguleika á að taka þátt í daglegri umbótavinnu samhliða hefðbundnum störfum.
Næsti yfirmaður er yfirlæknir brjóstaskurðlækningadeildar. Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í dagvinnu og er starfið 1. júní 2026 eða eftir samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón og undirbúningur samráðsfunda sérgreinar í samráði við yfirlækni
Umsjón og skráning gagna í heilbrigðisgagnagrunn í samráði við yfirlækni
Tímabókanir í Sögu, utanumhald um sjúklingahópa í Heilsugátt.
Utanumhald læknanema, sérnámslækna og lækna í sérnámsgrunni í samráði við yfirlækni
Skipulag starfsemi út frá vinnuskema lækna
Upplýsingagjöf og samskipti við starfsmenn og stofnanir
Skipuleggja og hafa yfirsýn yfir fundi, vinnustofur og aðra viðburði innan sérgreinarinnar
Ýmis verkefni í samvinnu við yfirlækni brjóstaskurðlækningadeildar
Samvinna og samstarf við aðrar sérgreinar innan spítalans í samráði við yfirlækni
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi heilbrigðisgagnafræðings
Reynsla af skráningu heilbrigðisgagna
Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi samskiptahæfileikar
Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi
Framúrskarandi tölvukunnátta, reynsla af notkun Excel og annarra gagnagrunna
Áhugi, hæfni og geta til að starfa í teymi
Reynsla af Sögukerfi og Heilsugátt æskileg
Mjög góð kunnátta í íslensku, og góð kunnátta í ensku
Reynsla af verkefnastjórnun er æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisgagnafræðingur, skrifstofustörf, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5
Staðsetning: Eiríksgata 5, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.05.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Heilbrigðisgagnafræðingur - Áhugavert starf á brjóstaskurðlækningadeild á Brjóstamiðstöð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
30.04.2026
Umsóknarfrestur
18.05.2026