Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur óskast til starfa

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.04.2026

Umsóknarfrestur

11.05.2026

Sérfræðingur óskast til starfa

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leitar að öflugum sérfræðingi með framúrskarandi stafræna færni og gagnalæsi til að vinna að stafrænni þróun, sinna áætlanagerð og framkvæmd fjárlaga.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða starf í einingunni Fjármál, stafræn þróun og innri þjónusta og heyrir starfið undir rekstrarstjóra ráðuneytisins. Starfið felur í sér mikla gagnavinnu og gagnaþróun sem snýr að fjármálum og áætlanagerð innan málaflokka ráðuneytisins sem og í tengslum við stofnanir þess. Viðkomandi tekur einnig þátt í stafrænni þróun ráðuneytisins með því að þróa góð og gagnvirk gögn sem nýtast við ákvarðanatöku. Sérfræðingurinn kemur að samskiptum við stofnanir og þróun mælikvarða og nýtingu fjármagns innan málaflokka.

Starfið krefst greinagóðrar stafrænnar færni þar sem unnið er með gagnagrunna og leitað gagnvirkra leiða til að safna og miðla upplýsingum. Ráðuneytið leggur ríka áherslu á hagnýtingu gervigreindar og er það eitt af hlutverkum sérfræðingsins að styðja við þá áherslu.

Hæfniskröfur

  • Háskólanám sem nýtist í starfi (s.s. fjármálaverkfræði, hagfræði, viðskiptafræði)

  • Mjög góð greiningarfærni og geta til að miðla upplýsingum

  • Framúrskarandi stafræn færni og geta til að vinna með gögn

  • Reynsla af fjármálavinnu og áætlanagerð

  • Mjög góð samskipta- og samvinnufærni

  • Geta til að starfa í hópi/teymi

  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi

  • Rík þjónustulund

  • Mjög góð enskukunnátta

  • Góð færni í íslensku í rituðu máli

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.

Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á gagnamálum og þróun stafrænna lausna þar sem frumkvæði, fagmennska, þekking og samvinnuhæfni skipta sköpum.

Í boði er áhugavert starf á skemmtilegum vinnustað þar sem starfa um 50 manns.

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 11.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Lárus Jóhannesson

Rekstrarstjóri

Tölvupóstur: larus.johannesson@urn.is

Jóhanna Ella Jónsdóttir

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: johanna.jonsdottir@urn.is

Þjónustuaðili

Umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur óskast til starfa

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.04.2026

Umsóknarfrestur

11.05.2026